Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 11
7. desember 2023 | | 11 er margföld samanlögð reiknigeta allra netþjóna hjá fiskvinnslufyrir- tækjunum í Eyjum og Vestmanna- eyjabæ. Tölvan verður öflugri og öflugri og þegar að Tesla gefur út uppfærslur á hugbúnaði, þá má segja að maður „download“i nýjum bíl í hvert skipti. Gríðarleg þróun í gervigreind er lykillinn að sjálfkeyrandi bílum og það er styttra í það en margir halda.“ Davíð segir nýjustu tölur Sam- göngustofu sýna yfirburði TESLA á rafbílamarkaði. Þar kemur fram að fjöldi hreinna rafbíla er kominn yfir 27.000 á Íslandi og þar af eru Teslur 6.315. „Tesla Model Y er langvinsælasti rafbíllinn enda fá menn mest fyrir peninginn í kaup- um á honum. Model 3 er svo í 3. Sæti á eftir hinum vinsæla Nissan Leaf. Í Vestmannaeyjum eru 196 rafbílar, þar af 42 Teslur og 342 tengiltvinn bílar. Það ótrúlegt að á Heimaey séu 2.264 bifreiðar í umferð.“ Vill Vestmannaeyjar sem tilraunasveitarfélag Davíð segir bílana nota gervi- greindina til fulls og því séu möguleikarnir fjölmargir. „Teslur eru með 9 myndavélar, 8 sem fylgjast með umhverfinu utan bílsins og 1 sem vísar inn á við og fylgist með / lærir af öku- manninum að keyra bílinn. Allar Teslur eru nettengdar, þannig er engin þörf á þjónustuskoðunum, þar sem að bíllinn/tölvan lætur bílstjórann vita ef eitthvað kemur upp á. Fjöldinn á heimsvísu er að nálgast 2 milljónir og er gervigreindin hjá Tesla að safna upplýsingum úr öllum þeim bílum sem eigendur leyfa. Ég sé fyrir mér að Vestmannaeyjar gætu orðið fyrstir til að bjóða upp á sjálfkeyrandi farartæki á götum bæjarins, svona einskonar tilraunasveitarfélag. Við ættum m.a.s. að gera út á það að vera til- raunasamfélag, þar sem við erum ákveðinn þverskurður af þjóðinni. Hér er höfn og flugvöllur (lítið notaður), öll skólastig, þokkalega fjölbreytt atvinnulíf, með flestar gerðir af þjónustu og tómstundum og stækkandi fjölþjóðlegt samfé- lag. Ég sé fyrir mér, eftir einhver ár, nokkrar sjálfkeyrandi sendibif- reiðar með sæti fyrir 6-8 manns sem færu rúntinn um Eyjuna og fólk pantar far frá A til B með Appi í gemsanum. Það gæti dreg- ið úr þörf á bíl númer tvö á mörg- um heimilum. Rafhlöður rafbíla fara stækkandi og drægni eykst og gera menn ráð fyrir að 500km drægni sé ákjósanleg til að komast hvert á land sem er án of margra hleðslustoppa. Það eru rafhlöður sem geymt geta 75-100kWst (kíló-Watt-stundir). Svo kölluð V2G tækni (Vehicle-to-Grid) er svo á næsta leiti þar sem rafbíllinn getur skilað orkunni til baka inn á dreifikerfið. Lauslega útreiknað gætu 100 Teslur haldið rafmagni á öllum heimilum í Eyjum í um eina klukkustund í venjubundnu rafmagnsleysi.“ Gefið rafmagn fyrir eina og hálfa milljón Davíð tók upp á því í júní árið 2020 að koma upp 11kW heimahleðslustöð sem staðsett er á bak við Strandveg 50, beint á móti verslun Tölvunar. Stöðin er opin öllum rafbílaaeigendum án endurgjalds. Hvað rekur mann í að setja upp rafhleðslustöðvar fyrir almenning og borga sjálfur reikninginn? „Það var nú bara vöntunin á stöðvum. Þegar Tölvun byrjaði að gefa rafmagn á fyrstu stöðinni þá var ein stöð fyrir, uppi við Hótel Vestmannaeyjar. Ég frétti af rafbílaeigendum sem ætl- uðu að nota helgi í Eyjum og voru búin að panta á hótelinu en hættu við þar sem að hleðslustöðin var biluð. Það þótti mér ótækt og ákvað að opna fyrir þessa fyrstu stöð mína. TESLA þjónustumið- stöðin fékk veður af þessu og bauð okkur tvær stöðvar í viðbót án endurgjalds. Þannig að við settum upp þrjár heimahleðslu- stöðvar eða svokallaðar TESLA Destination Charging, stöðvar. Ég hafði svo milligöngu um að koma þremur slíkum stöðvum upp á Básaskersbryggju, við ljósam- astrið, þannig að þar eru þrjár stöðvar sem bjóða fría hleðslu (í boði Bæjarins/Herjólfs) á allar gerðir rafbíla eins og hjá okkur.“ Davíð segir notkunina töluverða á stöðvunum við Strandveg. „Við vorum að skríða yfir 100.000 gefnar kWst og kostnaðurinn því kominn í 1,5 milljónir. Við erum að kanna möguleikann á að bjóða valfrjálsa greiðslu 500kr til að hafa fyrir kostnaði.“ Breytingar í kortunum Frá og með næstu áramótum munu skattaívilnanir tengdar rafbílum falla úr gildi. Einnig er stefnt að innleiðingu kílómetra- gjalds fyrir notkun rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla sem hafa hingað til borið takmarkaðan kostnað af notkun vegakerfisins. Hvernig leggjast fyrirhugaðar breytingar í Davíð? „Það hlaut að koma að þessu. Auðvitað eiga all- ar bifreiðar að greiða fyrir notkun. Það er þó þjóðhagslega hagkvæmt að nota okkar hreinu orku í stað innflutts eldsneytis, en á móti kemur að rafbílar eru almennt þyngri en bensínhákarnir.“ Hvaða skref vilt þú sjá næst í rafbílamálum á Íslandi? „Það er náttúrulega FSD (Full Self Driving) sjálfkeyrandi bílar. En þá þarf hið opinbera að bretta upp ermar og gera það mögulegt. Í dag er það samkvæmt lögum og reglum, bannað. Teslan býður upp á þetta, en þó þannig að bílstjór- inn þarf að halda í stýrið. Ég nota þetta mikið á keyrslu milli Landeyja og Reykjavíkur, Teslan les öll hraðaskilti og hægir á og gefur í eftir því. Hún er reyndar vonlaus í íslenskum hringtorgum. Einnig verður spennandi að sjá V2G lausnina komast í gagnið auk Robo-Taxi hugmyndar Musks sem snýst um það að eigandi get- ur „leigt út“ Tesluna sína á meðan hann er t.d. í vinnu. Það myndi virka svona svipað og Hopp raf- skutlurnar, nema að bíllinn kæmi sjálfur til notandans.“ Davíð hafði milligöngu um uppsetningu á hleðslustöðvum á Básaskersbryggju þar sem hægt er að hlaða í boði Herjólfs. Hleðslustöðin við Tölvun þar sem rafbílar hafa verið hlaðnir fyrir hálfa aðra milljón í boði Tölvunar. Davíð seldi Hjalta Enok ökukennara Model 3 bílinn, þannig að ungmenni Eyjanna geta lært á nýjustu rafbílatæknina.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.