Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 15
7. desember 2023 | | 15
ÍBÚÐ Í SÓLHLÍÐ
FYRIR
ELDRI BORGARA
Vestmannaeyjabær auglýsir lausa til
umsóknar íbúð eldri borgara við Sólhlíð 19.
Íbúðin er 52,6 fm. Leiguverð fylgir leiguverði
annarra íbúða hjá Vestmannaeyjabæ.
Umsóknarfrestur er til 17. desember nk. Sótt er
um rafrænt inn á Mínar síður á vestmannaeyjar.is
en einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublað í
þjónustuveri Fjölskyldu -og fræðslusviðs að Kirkjuvegi
23. Umsóknum og fylgigögnum skal einnig skilað
þangað. Eldri umsóknir óskast staðfestar. Allar nánari
upplýsingar veitir Margrét Ingólfsdóttir, í síma 488-
2000 eða á netfanginu margret@vestmannaeyjar.is.
Það var slegið upp veislu í Laxey í
síðustu viku þegar því var fagnað
að fyrstu hrognin eru komin í hús
og skrifstofur að verða klárar.
Þangað mættu eigendur, starfsfólk
og fulltrúar fyrirtækja sem komið
hafa að verkinu, alls um 100
manns.
„Í dag var stór dagur hjá okkur
í Laxey. Við tókum á móti fyrstu
hrognunum frá Benchmark. Þrír
fulltrúar frá Benchmark komu til
okkar og afhentu hrognin. Það
var mikill spenningur og gleði hjá
okkar fólki í allan dag enda stór-
um áfanga náð,“ segir á heimasíðu
Laxeyjar.
Stórum áfanga fagnað
Forseti bæjarstjórnar Páll Magnússon afhenti Sigurjóni Óskarssyni fulltrúa
eigenda myndarlegan blómvönd frá bæjarstjórn af tilefni tímamótanna.
Myndir Laxey.
Sigurjón Óskarsson og fjölskylda.
Um 100 manns mættu í hófið.