Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 16
16 | | 7. desember 2023
Óskar Elías Óskarsson er fædd-
ur árið 1955 í Vestmannaeyj-
um. Eiginkona hans er Hildur
Hrönn Zoega Stefánsdóttir og
saman eiga þau Hreiðar Örn
Zoega Óskarsson og Óskar
Elías Zoega Óskarsson.
Óskar Elías tók við rekstri
Áhaldaleigunnar 1984 en fyrir-
tækið var upphaflega stofnað
árið 1971.
Óskar Elías hefur rekið
Áhaldaleiguna ehf. frá árinu 1984,
þegar hann tók við af bróður sín-
um Ármanni Halldóri Óskarssyni
heitnum. Áhaldaleigan hefur þó
tekið hinum ýmsum breytingum
síðan þá og verkefnin eftir því. Í
fyrstu gekk reksturinn að mestu út
á tækjaleigu, malarnám, kjarna-
borun, sögun og ýmis stór og smá
verkefni sem komu að breytingum
og uppbyggingu á húsnæði. Á
þeim tíma var Óskar með fleiri
einstaklinga í vinnu hjá sér. „Ég
ætlaði bara að prufa þetta í þrjú til
fimm ár en ég er hér enn.“
Áhaldaleigan hefur verið í því
formi eins og hún er í dag síðan
1998 þegar Óskar byrjaði með
hjólbarðaþjónustu. „Tímarnir
breytast og mig vantaði meira
að gera, því ákvað ég að fara út í
dekkin.“ Og að því sögðu fagnar
Óskar því 25 ára hjólbarðaþjón-
ustu í ár.
Þróunin í takt við samfélagið
Fyrirtækið hefur vaxið frá ári til
árs. „Allt er orðið mikið þróaðara
líkt og annað í samfélaginu. Tæk-
in eru orðin fleiri og fullkomnari
og dekkin miklu betri. Þegar ég
byrjaði var algengast að dekkin
væru 12-15 tommu en í dag er
algengast að dekkin séu frá 17-24
tommu. Vinnan verður erfiðari
fyrir vikið, þetta var miklu léttara
þegar ég byrjaði.“ Áhugavert er að
segja frá því að þegar Óskar tók
bílprófið fyrir gos voru 500-600
ökutæki skráð í Vestmannaeyjum
en í dag eru yfir 3.000 ökutæki
skráð. „Það er bíll á næstum
hverju einasta heimili og á mörg-
um hverjum fleiri en einn.“´
Í slíkri álags vinnu segir Óskar
sig heppinn að vera við góða
heilsu og í frítíma er hann dugleg-
ur að stunda reglulega hreyfingu,
svo sem badminton, sund og
karlaleikfimi.
Dekkjavertíð hafin
Dekkjavertíð er háannatími hjá
Óskari og stendur hún yfir í um
það bil tvo mánuði tvisvar á ári.
„ Þá er ég mættur eldsnemma
og vinn fram á kvöld, þetta er
mikil törn.” Að öðru leyti er þetta
heilsársvinna þar sem hann leigir
út ýmis konar smátæki í iðnað,
loftpressu og vinnupalla. Einnig
er hann með hjólaviðgerðir og
varahluti fyrir hjól, ásamt bíla
hreinsivörum og fleira.
Aðspurður hvenær hann ætli
að hætta segir hann: „Ég ætla að
reyna að halda upp á 30 ára starfs-
afmæli hjólbarðaþjónustunnar,
þetta er bara óskrifað blað.”
Segist hann gera sitt besta til að
bjóða upp á góða þjónustu og að
lokum vill hann koma á framfæri
þakklæti til viðskiptavina fyrir
þolinmæði og trygga þjónustu.
Gólfið ný steypt.
Nýlega var Áhaldaleigan máluð og nýtt járn sett á hluta af húsinu. Einnig hefur
Óskar staðið í framkvæmdum inni, endurnýjun á tækjabúnaði og stærsti hluti
gólfsins nýsteyptur. Glæsileg breyting á húsnæðinu.
Óskar Elías ásamt barnabarninu sínu Bríeti Ósk.
Fagnar 25 ára hjólbarðaþjónustu
” Ég ætlaði bara
að prufa þetta
í þrjú til fimm ár
en ég er hér enn