Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Blaðsíða 6
6 | | 7. desember 2023
Miklar skemmdir urðu á
neysluvatnslögninni til Vest-
mannaeyja 17. nóvember sl. er
akkeri Hugins VE lenti á leiðsl-
unni í innsiglingunni. Hún er
eina flutningsæð neysluvatns
til Vestmannaeyja. Málið telst
alvarlegt og hættustig var
sett á þann 28. nóvember af
Almannavarnadeild ríkislög-
reglustjóra. Búið er að meta
skemmdirnar í samráði við
framleiðendur lagnarinnar og
undirbúningur að aðgerðum
til að verja lögnina frekari
skemmdum hafinn. Þetta sýnir
fram á með ótvíræðum hætti
að leggja þarf nýja vatns-
lögn til Vestmannaeyja strax
næsta sumar. Starfshópur
bæjarstjórnar um málið, sem
í sitja Íris Róbertsdóttir, Eyþór
Harðarson og Páll Magnús-
son, sendi frá sér tilkynningu
í framhaldi af yfirlýsingu
ríkislögreglustjóra. Sviðs-
stjóri Almannavarnadeildar
ríkislögreglustjóra er ásamt
sérfræðingum við störf í Eyjum
þessa dagana.
Guðrún Hafsteinsdóttir dóms-
málaráðherra var á ferð í Vest-
mannaeyjum í liðinni viku og
ræddi við Eyjafréttir um stöðuna
sem upp er komin. „Staðan er
alvarleg. Á það hefur verið bent
lengi bæði af heimamönnum sem
og þingmönnum að það þyrfti að
leggja varalögn til Vestmanna-
eyja og voru bundnar vonir við
að hægt yrði að leggja nýja lögn
sumarið 2025. Nú er ljóst að
leggja þarf nýja lögn sem fyrst.
Það er í raun kraftaverk að lögnin
haldi en hún er mikið skemmd
og liggur á vondum stað auk
þess sem hún er á hreyfingu sem
reynir mjög á hana. Í ljósi þess að
eingöngu ein vatnslögn liggur til
Vestmannaeyja skapast við þessa
stöðu hættuástand. Það er því
nauðsynlegt að leita allra leiða
til að tryggja að lögnin endist þar
til ný lögn er lögð, m.a. með því
að reyna að festa hana og verja
svo hún haldi. Þetta er auðvitað
bara bráðabirgðaviðgerð. Við
vonum að þetta gangi og höf-
um við kallað til okkar helstu
sérfræðinga til að vinna að því
verkefni. Það er hins vegar ljóst
að vinna almannavarna tekur mið
af þeirri mögulegu sviðsmynd að
vatnslögnin gefi sig og er unnið
að því innan almannavarnardeild-
ar Ríkislögreglustjóra, sem heyrir
undir ráðuneytið, og almanna-
varnardeildar Vestmannaeyja að
undirbúa alla aðila og grípa til
mótvægisaðgerða til að bregðast
við slíkri stöðu.“
Ber virðingu fyrir æðruleysi
Eyjamanna
Guðrún segir hljóðið
í Eyjamönnum vera
ágætt þrátt fyrir
stöðu mála. „Eyja-
menn eru vanir því
að kljást við óblíð
náttúruöfl og takast á
við erfiðar áskoranir
þannig ég verð að
segja að ég ber mikla
virðingu fyrir æðru-
leysi Eyjamanna. Ég
heyrði ekki annað en
að fólk taki þess-
um fregnum með
stóískri ró og allir
séu að gera sitt til
að lífið geti haldið
áfram sinn vanagang
í Eyjum.“
Ríkisstjórnin fylgist
vel með
Hún segist ánægð
með heimsóknina til Eyja.
„Megintilgangur heimsóknar
minnar var að hitta fólk og fara
yfir stöðuna augliti til auglitis. Í
sömu ferð komu einnig fulltrúar
Almannavarna og sérfræðingar
þeirra og verða þeir í Eyjum í
nokkra daga til að fara yfir til
hvaða aðgerða þarf að grípa núna
næstu daga, vikur og mánuði.
Ég vildi einnig með heimsókn
minni leggja áherslu á það að
ríkisstjórnin fylgist vel með og
vill styðja við Vestmannaeyinga
nú sem endranær. Ég hef upplýst
ríkisstjórnina um málið á hverjum
ríkisstjórnarfundi síðan atvikið
átti sér stað og er málið tekið
mjög alvarlega. Aðalatriðið í mín-
um huga er að Vestmannaeyingar
viti að þjóðin stendur með þeim.“
Á tímum aðgæslu og óvissu
Guðrún segir það að lýsa yfir
hættustigi Almannavarna í
Vestmannaeyjum þýði í raun að
nú erum við á tímum aðgæslu og
óvissu. „Við vitum ekki hvað eða
hvort eitthvað gerist en við ætlum
að vera við öllu búin. Um leið og
hættustigi er lýst yfir þá virkjast
samhæfingarstöð Almannavarnar-
deildar Ríkislögreglustjóra og
það er mikill styrkur í því fyrir
Vestmannaeyjar. Þannig koma
fleiri að málinu og bjargirnar
verða þar með vonandi fleiri.
Það er mikill stuðningur fyrir
samfélagið í Eyjum
að njóta liðsinnis Al-
mannavarnardeildar
Ríkislögreglustjóra
í þessu verkefni sem
framundan er enda
eru þar aðilar með
mikla reynslu og
þekkingu að takast
á við krísur sem
þessa.“
Almannavarnardeild
Ríkislögreglu-
stjóra, heyrir undir
ráðuneyti Guðrún-
ar og sinnir mjög
mikilvægu hlutverki
þegar upp kemur al-
mannavarnarástand,
líkt og það sem nú
hefur myndast í
Vestmannaeyjum og
Grindavík. „Ég að
sjálfsögðu vinn náið
með þeim í þessum
mikilvægu og stóru verkefnum.
Auk þess er í gangi heildar-
stefnumótun á sviði almannavarna
sem mun leiða til heildarendur-
skoðunar almannavarnarlaganna.
Það er bæði stórt og mikilvægt
verkefni sem mun styðja enn
frekar við almannavarnarviðbragð
hér á landi, sem nú þegar er í
heimsklassa.“
Eyþór Harðarson, Íris Róbertsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Páll Magnússon, Víðir Reynisson og Karl Gauti Hjaltason.
Eyjamenn eru vanir áskorunum
Aðalatriðið að Vestmannaeyingar viti að þjóðin stendur með þeim
” Við vitum ekki hvað eða hvort
eitthvað gerist en við ætlum
að vera við öllu búin. Um
leið og hættustigi er lýst yfir
þá virkjast samhæfingarstöð
Almannavarnardeildar
Ríkislögreglustjóra og það
er mikill styrkur í því fyrir
Vestmannaeyjar. Þannig koma
fleiri að málinu og bjargirnar
verða þar með vonandi fleiri.
SINDRI ÓLAFSSON
sindri@eyjafrett ir. is