Fréttir - Eyjafréttir - 07.12.2023, Page 19
7. desember 2023 | | 19
Fjölskylda? Foreldrar, stjúpfor-
eldrar, tvær systur og hundur.
Hvenær fékkstu bílpróf? 26. janú-
ar á þessu ári.
Var spenna fyrir bílprófinu? Já og
vinirnir voru líka spenntir að fara
á fyrsta rúntinn þar sem ég var
fyrstur af okkur að fá prófið.
Hvernig lagðist ökunámið í
þig? Ég var aldrei neitt verulega
stressaður yfir náminu. Ég átti
alltaf auðvelt með að skilja námið
og náði báðum prófunum frekar
auðveldlega. Ég lærði bara mest
fyrir bóklega með því að taka
æfingapróf.
Helstu breytingar við að fá
bílpróf? Maður getur skotist í
krónuna í nestinu í skólanum t.d.
líka ef maður þarf eitthvað að
skjótast í bæinn þá getur maður
bara keyrt sjálfur.
Hver er draumabílinn? BMW F80
M3.
Fjölskylda? Mamma mín heitir
Kristjana Jónsdóttir, Pabbi minn
heitir Elvar Páll Sævarsson, Síðan
heita stjúp-foreldrar mínir Guðjón
Ásgeir Helgason og Jóhanna Þor-
björg Magnúsdóttir. Systkinin mín
eru Bryndís, Bogi, Kristín Dóra,
Sara Huld, Gunnar Páll, Rannveig
Gígja og Jökull.
Áhugamál? Ég hef rosa mikinn
áhuga á dýrum.
Hvenær fékkstu bílpróf? Ég fékk
bílpróf 5 júní.
Var spenna fyrir bílprófinu? Já
það var frekar mikil spenna.
Hvernig lagðist ökunámið í þig?
Það var rosa mikið stress fyrir
báðum prófunum. Það fór meiri
tími í að læra fyrir bóklega þar
sem það var búið að tala um að
það sé erfiðara.
Helstu breytingar við að fá
bílpróf? Ég hef svo miklu meira
frelsi, þar sem ég þar ekki alltaf
að vera að biðja um að sækja mig
eða skutla.
Hver er drauma bílinn? Einhver
jeppi t.d. Ram, GMC eða Ford.
Jason Stefánsson
Valdís Bylgja Elvarsdóttir
Fjölskylda? Mamma mín heitir
Guðrún Erla og pabbi minn heitir
Alfreð, svo á ég þrjú eldri systkini
sem heita Eygló Dís, Halldór
Friðrik og Birkir Snær.
Áhugamál? Mér finnst gaman að
ferðast og vera með vinum og
fjölskyldu .
Hvenær fékkstu bílpróf? Ég fékk
það í byrjun ágúst.
Var spenna fyrir bílprófinu? Já
það var mjög mikil spenna, mér
finnst mikið frelsi við það að vera
komin með bílprófið.
Hvernig lagðist ökunámið í þig?
Ég var frekar stressuð fyrir bæði
bóklega og verklega en meira fyrir
bóklega, því ég hafði oft heyrt að
það sé erfitt og að það sé verið að
reyna að plata mann í þeim. En ég
æfði mig vel fyrir bæði prófin og
lagði mig alla fram. Svo þegar ég
var búin að ná báðum prófunum
þá var mér mjög létt og það var
mjög skemmtilegt. Ég fór strax á
rúntinn með vinkonum mínum.
Helstu breytingar við að fá
bílpróf? Helstu breytingarnar
við að fá bílpróf er það er mjög
mikið frelsi og ég get farið hvert
sem ég vil án þess að vera bundin
mömmu og pabba.
Hver er drauma bílinn? Drauma
bíllin minn er BMW.
Helga Björt Alfreðsdóttir
Fjölskylda? Arnar Ingi og Elín
Þóra.
Áhugamál? Bílar og vélar.
Hvenær fékkstu bílpróf? 25.
september.
Var spenna fyrir bílprófinu? Já
það var það mikil spenna að mað-
ur fór strax út að keyra loksins
einn án þess að vera með mömmu
eða pabba við hliðina á þér.
Hvernig lagðist ökunámið í þig?
Það var alveg mjög mikil spenna,
ég hugsaði að það gæti verið
stressandi en ég var allavega ekki
mikið stressaður. Vinnan sem fer í
að fá bílpróf er ekki mikil en það
er smá vinna, sérstaklega öku-
skóli 3 sem er besti parturinn af
náminu. Það sem mér fannst vera
áhugaverðast er hversu auðveldara
það er að fara upp á land til þess
að hitta vini.
Helstu breytingar við að fá bíl-
próf? Auðveldara að komast upp á
land til að hitta vini og maður þarf
ekki að spyrja um far nema bara
til að fara á verkstæði.
Hver er drauma bílinn? Sko
drauma bíllinn væri örugglega
1995 Dodge Charger eða 2005
Subaru Impreza STI.
Ingimar Óli Arnarsson
Bílprófið gefur meira frelsi
Það er stór áfangi í lífi hvers manns að taka bílpróf. Eyjafréttir tóku fjóra krakka tali sem tóku bílpróf á árinu og eru meira en sátt.
Meira frelsi segja þau og öll sjá fyrir sér draumabílinn.