Stuðlaberg - 01.06.2014, Side 5
STUÐLABERG 1/2014 5
Laugardaginn 12. apríl efndu skáld til
upplestrarhátíðar í Háskólabíói undir heitinu
Hin svokölluðu skáld. Uppákoman á rætur
sínar nokkra áratugi aftur í tímann, í janúar
1976, þegar Listaskáldin vondu lásu upp á
þessum sama stað við mikinn fögnuð, aðsókn
og eftirtekt. Ætlunin var að endurtaka leikinn,
en nú með öfugum formerkjum, ef svo má að
orði komast. Að þessu sinni voru á ferðinni
skáld sem yrkja hefðbundið og gjörningurinn
snerist um að endurvekja hið hefðbundna
ljóð sem höfundarnir telja að hafi verið sett til
hliðar og ekki notið sannmælis.
Bjarki Karlsson, ljóðskáld, er öðrum frem-
ur í forsvari fyrir hópinn. Hann lýsir tildrög-
unum svo:
Hin svokölluðu skáld
Upplestur í Háskólabíói í apríl
„Mér hefur stundum fundist fjallað um mig
og bók mína, Árleysi alda, á þann veg að þarna
væri loksins kominn fram einhver sem kynni
að yrkja undir bragarháttum og það hefði ekki
gerst áratugum saman. Ég vilda sýna fram á
hve rangt það er. Nú er hægur vandi að tína til
hóp landsþekktra skálda sem þannig yrkir og
hefur vakið athygli fyrir það. Í stað þess að hóa
því góða fólki saman fannst mér forvitnilegra
að kynna til sögunnar fólk sem fæst við hátt-
bundnar yrkingar en er ýmist ekki þekkt eða
betur þekkt fyrir annað. Það var markmiðið
með uppákomunni og þetta sjónarmið skýrir
að einhverju leyti valið á þeim sem lásu,“ segir
Bjarki og getur þess að undirbúningurinn hafi
verið tímafrekur og erfiður.
Á myndinni eru talið frá vinstri: Örlygur Ben., Aðalsteinn Svanur Sigfússon, Sigurður Karls-
son (kynnir), Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík, Snæbjörn Ragnarsson, Sigrún Haraldsdótt-
ir, Þórunn Erlu Valdimarsdóttir, Eva Hauksdóttir, Davíð Þór Jónsson, Valdimar Tómasson,
Bjarki Karlsson.
Ra
gn
hi
ld
ur
A
ða
ls
te
in
sd
ótt
ir