Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 18

Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 18
18 STUÐLABERG 1/2014 Inga Rósa Þórðardóttir hefur kennt ís- lensku við Foldaskóla í Grafarvogi um árabil. Hún hefur lagt mikla áherslu á bragfræði- kennslu og sem fagstjóri móðurmáls við skólann haft umsjón með þeirri kennslu. Hún tók vel í það að svara nokkrum spurningum Stuðlabergs um framkvæmd kennslunnar, áhuga nemenda og framgang hins hefð- bundna ljóðs meðal grunnskólanemenda. Hvað er það sem einkum veldur því að þú leggur þessa áherslu á bragfræðikennslu? Þegar ég kom hingað að Foldaskóla hafði bragfræði verið gert hátt undir höfði og ég reyndi að halda merkinu á lofti eftir fremsta megni – en hefði þó viljað gera betur. Mér finnst miklu skipta að nemendur kynnist þessum forna menningararfi. Það verður víst enginn annar til að halda honum við og ef við týnum niður forminu og aðferðafræðinni er það þar með horfið úr heiminum og hann stendur fátækari eftir. Svo er þetta bara skemmtilegt, hægt að leika sér á alla kanta og setja saman alls kyns vísur, t.d. með nöfnum nemenda, veðrinu, voninni og hverju sem er. Þeir hafa alltaf gaman af því að leika sér. Einu sinni var því haldið fram að hefðbundna ljóðið væri dautt. Hvað heldur þú? Nei, það held ég alls ekki, öðru nær. Ég sé ekki betur en að það sé heldur að sækja í sig veðrið ef eitthvað er. Um tíma þótti hið hefðbundna ljóðform heldur óspennandi og Steinn Steinarr sagði í viðtali 1950 að það væri nú „loksins dautt“. Hann hafði ekki rétt fyrir sér hvað þetta varðaði enda orti hann sjálfur hefðbundin ljóð og gerði það listavel. En inn var komið nýtt ljóðform, ekki í staðinn heldur til viðbótar við hið hefðbundna. Og þannig sýnist mér það vera enn, hið hefðbundna form mátti sín minna um tíma en það hvarf ekki og gerir vonandi aldrei. Ég held að þeir sem á annað borð hafa áhuga á að yrkja vilji hafa formið fjölbreytt, bæði hefðbundið og óhefðbundið, fast og laust. Hvaða kynni hafðir þú af vísnagerð og brag- fræði þegar þú varst að alast upp? Móðir mín og amma voru miklar ljóða- konur, lásu mikið og höfðu áhuga á ljóðum. Þau voru því höfð fyrir mér frá því að ég var ómálga barn. Ég lærði talsvert af ljóðum, mest í skólanum, og var látin æfa flutning þeirra í eldhúsinu heima. Sennilega verður sú þjálfun seint fullþökkuð eða ofmetin. Mér var kennt að kveðast á eða skanderast og við undum okkur við það, vinkonur, svona með öðrum leikjum. Ég átti vísnabækur fyrir börn og þulur og hafði sérstaklega gaman af þulunum eins og mörg börn. Þannig reikna ég með að bragfræðin hafi síast inn ómeðvitað. Hvernig taka nemendur því þegar bragfræð- inni er haldið að þeim? Það er auðvitað misjafnt eins og með annað nám, sumir hafa af þessu mikla ánægju, aðrir minni. En almennt hrífast þeir með og hafa gaman af því að spreyta sig á bragfræðiverkefnum enda eru þau frekar einföld og rökrétt og flestir ná á þeim ágæt- um tökum. Æfingarnar eru svolítið eins og púsluspil og bjóða upp á mikið samstarf og samvinnu nemenda. Það er oft afar skemmti- legt að hlusta á nemendur niðursokkna í að raða saman vísum og nota bragfræðihugtök af mikilli þekkingu, ræða saman um stuðla og höfuðstafi, ljóðstafaorð, rímorð, kveður og fleira. Hvað er erfiðast við bragfræðikennsluna? Ég get eiginlega ekki talað um erfiða „Bragfræðin sjálf er sjaldnast flókin“ Rætt við Ingu Rósu Þórðardóttur um bragfræðikennslu

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.