Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 14

Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 14
14 STUÐLABERG 1/2014 Tungan sveiflast til og frá, tönnunum hún skellur á. Þannig heyrist þetta hljóð – það er regla, talsvert góð. T - ið gefur táp og fjör, takt og söng með bros á vör. T - ið býr í tönnunum og tungunni í mönnunum. Stuðlasetning, áherslur og hrynjandi hjálpa hugarstarfseminni að festa orð og Gunnar J. Straumland sendi blaðinu eftir- farandi texta: Vísur þær, sem hér fara á eftir, skrifaði ég upp eftir Eysteini heitnum, frænda mínum, Gíslasyni Jóhannessonar, í Skáleyjum. Þeir sátu saman fjórir bræðurnir í Skáleyjum um sólstöður, undir húsvegg, á blíðviðrisdegi og ákváðu að yrkja um sólina. Þetta voru þeir Guðmundur Jóhannesson, Andrés Jóhannesson Straumland, Gísli Jóhannesson og Jón Kristinn Jóhannesson. Guðmundur, sem var elstur þeirra bræðra, byrjaði háleitur: Ég syng á meðan sólin skín Hagorðir bræður í Skáleyjum Ég syng á meðan sólin skín og signir fjallatind. Þá bærast ljóðabrotin mín í blárri himinlind. Andrés tók við en hann var, eins og kunnugt er, býsna róttækur: Þótt fjendur vinni á frelsi bug og fenni um snauðra hag. Við syngjum um menn með sigurhug vorn söng um fólksins dag. Þá Gísli, en bóndinn í honum kom skýrt fram: Ég tigna vorsins mikla mátt sem mýkir kalinn svörð. Og sendir geisla úr suðurátt að signa vora jörð. Og að lokum Jón Kristinn, sem var ær- ingi hinn mesti: Í sólskinsþey hvern sumardag er söngvaharpan þreytt. Við syngjum hvert eitt sólarlag vorn söng um ekki neitt. merkingu í minni (Goswami, 2008) og rifja aftur upp. Það er von okkar, sem að þessu framtaki stöndum að hægt verði að gefa vís- urnar út með þeim hætti, að þær verði sem eftirminnilegastar og aðgengilegastar fyrir ung börn. Steinunn Torfadóttir/RIA. Heimildir Dehaene, S. (2009). Reading in the brain. New York, NY: Penguin Viking. Goswami, U. (2008). Analogy and the brain. A new perspective on relational primacy. Behavioral and Brain Sciences, 31(4), 387-388. Frá Skáleyjum. M at s W ib e Lu nd

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.