Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 10

Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 10
10 STUÐLABERG 1/2014 Árið hét 1989 þegar Jói í Stapa og Ingi Heið- mar, hagyrðingurinn snjalli, og vinur hans, skrásetjarinn, fóru norður í land að finna forna vini og vísnasmiði og boðuðu þá símleiðis til að snæða saman kvöldverð á Skagaströnd. Þar létu gestir fjúka í kviðlingum og ákváðu að hittast að ári liðnu á Hveravöllum. Fundarboð- endur, sem bjuggu í Hreppunum, og nýir fé- lagar úr Árnesþingi komu þangað til móts við Norðlendinga, Varmalækjarfeðga úr Borgar- firði og fleiri. Þeir Jói og Ingi Heiðmar fengu áfram hvatningu um að halda uppi merkinu Braga og tóku fyrir lítt kunnar slóðir vestur í Sælingsdal og sömdu við vertinn á Laugum að taka að sér veislu og móttöku. Dreifibréf sendi Ingi Heiðmar, Jói hringdi í gamla skólabræð- ur frá Hvanneyri og einn þeirra, Haukur á Snorrastöðum, var settur til veislustjóra. Annar kom norðan af Húsavík og bauðst til að taka við boltanum. Árið eftir stóðu Þingeyingar fyrir glæsilegu móti í Skúlagarði þar sem ekki var aðeins úrvalsveislustjóri heldur kom Starri í Garði ofan úr Mývatnssveit til að setjast í sæti heiðursgests. Þegar kom að mótinu á Flúðum 1994 voru samþykktar reglur fyrir Bragaþing- in sem hafa verið látnar duga og landsnefnd verið síðan við stjórnvölinn. Til Laugamótsins 1991 komu Iðunnarmenn úr Reykjavík undir forystu Sigurðar Sigurðarsonar sem tók síðan stóran þátt í framgangi mótanna. Sigurður var vinsæll og virtur fararstjóri í hópferðum á Bragaþingin og stóð fyrir tveimur fjölmenn- ustu mótunum í Reykjavík árin 1995 og 2000. Bragaþing fara hringferð um frónið á fimm árum, leiðtogi landsnefndar verður sá sem býr í fjórðungnum og undirbýr mótið það árið, hagyrðingar koma á pall, bæði til að sýna snilli sína og tjá sig, heiðursgestur flytur ávarp sitt og Stuðla og rím í brjósti ber ég Bragaþing í aldarfjórðung Ingi Heiðmar stjórnar söng milli atriða. Oft er kveðið. Af heiðursgestum má fyrsta telja: Þórð í Skógum, Helga Hálfdanarson þýðanda, Guð- mund Inga á Kirkjubóli, Vilhjálm á Brekku, Þorfinn á Ingveldarstöðum og Starra sem áður var nefndur. Ötulan stuðningsmann fengu Bragaþingin í Guðmundi Inga Jónatanssyni kennara og prentara á Dalvík sem prentaði vísnakver í mörg ár en þeir Jói bjuggu honum í hendur. Á síðari árum tók Ragnar Böðvarsson við því hlutverki. Ingi Heiðmar Jónsson tók saman. Fjölmargar vísur hafa orðið til í tengslum við bragarþingin: Allir fagni í einum kór undir í fjöllum tekur er hagyrðinga hópur stór heim að Laugum ekur. Ormur Ólafsson Frumkvöðlarnir Jói í Stapa og Ingi Heiðmar.

x

Stuðlaberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stuðlaberg
https://timarit.is/publication/1892

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.