Stuðlaberg - 01.06.2014, Blaðsíða 25
STUÐLABERG 1/2014 25
Áhugi á háttbundnum kveðskap
Rætt við Hauk Þorgeirsson, nýbakaðan doktor í bragfræði
Haukur Þorgeirsson varði doktorsritgerð
sína í Hátíðasal Háskóla Íslands 26. nóvember
2013. Ritgerðin nefnist: Hljóðkerfi og bragkerfi:
Stoðhljóð, tónkvæði og önnur úrlausnarefni í ís-
lenskri bragsögu ásamt útgáfu á Rímum af Orm-
ari Fraðmarssyni. Hugvísindastofnun Háskóla
Íslands gaf út. Hér er fjallað um bragfræði og
titillinn er langur og afar forvitnilegur. Þess
vegna þótti við hæfi að hitta doktorinn að
máli og leggja fyrir hann nokkrar spurningar.
Í stuttu máli, um hvað fjallar doktorsritgerðin?
Hún er um það hvað gefi hljóðum máls-
ins þá virkni sem þau hafa í skáldskap. Hvers
vegna stuðla saman hljóð sem eru ekki alveg
eins – til dæmis k-in í koma og kemur? Hvers
vegna getur það gengið í dægurlagi að ríma
saman miða og lifa en varla t.d. risa og blika?
Um atriði af þessu tagi hafa verið settar fram
kenningar af hljóðkerfislegum toga og er þar
lögð áhersla á eins konar tengsl hljóðanna
eins og þau eru notuð í tilteknu tungumáli.
En ég gríp heldur til skýringa af hljóðfræði-
legum toga – okkur þykja hljóðin lík ef þau
eru hljóðeðlisfræðilega lík. Svo koma einnig
hefðarreglur til skjalanna og þær valda því að
skáldskapurinn dregur dám af eldri stigum
málsins.
Hvað kom til að þú ákvaðst að læra bragfræði?
Ég hef haft þrotlausan áhuga á háttbundn-
um kveðskap frá því að ég var barn.
Hvað kom þér mest á óvart þegar þú vannst að
rannsókninni?
Ég komst að því að í fornum rímum vildu
skáldin ekki ríma saman orðmyndir eins
og góður og bróður, sem ríma fullkomlega í
seinni alda íslensku. Líklega skýringu tel ég
að íslenska fyrir siðaskipti hafi haft einhvers
konar aðgreinandi tónkvæði, líkt og heyra má
í norsku. Rannsóknir mínar á þessu undu upp
á sig og að lokum varð þetta fyrirferðarmesta
efnið í ritgerðinni.
Hvað tók rannsóknin langan tíma?
Ég hóf doktorsnám 2009 og lauk því 2013.
Ég var svo lánsamur að njóta námsstyrkja all-
an tímann og gat því einbeitt mér að verkinu.
Hver var Ormar Fraðmarsson og hvað vann
hann sér helst til frægðar?
Ormar er hetjan í Ormars rímum sem ég
gaf út í doktorsritgerðinni. Sagan um Ormar
er nokkuð dæmigerð fornaldarsaga eða róm-
ansa. Hetjan berst við þursa, hefnir föður síns,
bjargar konungsríki og kvænist konungsdótt-
urinni. Mér þykja margar vísur í rímunum
fallegar og höfundi tekst vel upp í lýsingum
á hreystiverkum og siglingum.
RIA.
Haukur Þorgeirsson tekur við doktorsskír-
teininu úr hendi Guðna Elíssonar deildar-
forseta.