Stuðlaberg - 01.06.2014, Síða 17
STUÐLABERG 1/2014 17
Hagyrðingamót var haldið á staðnum. Þar
voru mættir á pallinn þeir Ómar Ragnarsson,
séra Hjálmar Jónsson, Bjarki Karlsson og Helgi
Zimsen. Auðvitað var spurt um elliglöpin.
Séra Hjálmar orti:
Þó að mæði minnistöp
mild þér birtan skín.
Flokkast nú undir elliglöp
asnastrikin þín.
Og Helgi Zimsen, sem er reyndar korn-
ungur maður, sá þetta þannig fyrir sér:
Elliglöpin eru mér
einhver svona gletta:
Horfa í spegil, heilsa sér
og hugsa: Kvur er þetta?
Hagyrðingar voru spurðir hvernig þeir
hygðust eyða ellinni þegar þar að kæmi.
Bjarki svaraði þannig:
Fornari en frumlífsöld,
fúllyndari en heimsstyrjöld
og héraðsplága hundraðföld
hyggst ég verða um ævikvöld ...
‒ og mér til gamans grænu að snýta í
gluggatjöld.
Og Ómar Ragnarsson orti meðal annars
um starfslokin:
Það er öruggt að starfslok albest nást
ef að menn vinna sjálfstætt,
því starfslokin eru yfirleitt skást
ef það er hvort eð er sjálfhætt.
Hagorðir Iðunnarfélagar ortu um ritstjór-
ann og kváðu undir rímnalögum. Þórarinn
Már Baldursson gaf tóninn:
Rómi þýðum Ragnari
rekkar fríðir kveða:
Hann er lýðum lagnari
við ljóðasmíð að streða.
Og áfram héldu hringhendurnar. Næstur
var Helgi Zimsen:
Óðinn snjalla yrkir hann
ekki‘ á palli þagnar.
Ljóðs við brallið leika kann
léttur kallinn Ragnar.
Næst er svo hringhenda oddhend, líka
eftir Helga:
Vísur klingja í kvæðabing
karls ei þvingast rökin..
Ragnar Ingi ríms við þing
rétt kann slyngu tökin.
Höskuldur Búi Jónsson kom inn á fæð-
inguna sjötíu árum fyrr:
Fjöllum undir fæddist barn
fegið stundi bjargið.
Klettar drundu, hreyfðist hjarn
hátt- var -bundið argið.
Og Höskuldur hélt áfram vangaveltum
um afmælisbarnið:
Róm að brýna‘ í ræðu kann
röðull skín á svörðinn.
Sigurlínu sinni ann
svo að hlýnar jörðin.
JR.
Hagyrðingar voru mættir á staðinn. Frá
vinstri Ómar Þ. Ragnarsson, Helgi Zimsen,
sr. Hjálmar Jónsson og Bjarki Karlsson.
G
un
na
r K
r.
Si
gu
rjó
ns
so
n