Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Blaðsíða 8
8 Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
Hjólagrein – 2 síður. Hafa kortið stórt. getum reddað einhverjum hjólastígamyndum
„Vegurinn var orðinn mjög lélegur. Hann hafði verið
steyptur á sínum tíma en var orðinn sprunginn
og holóttur,“ segir Guðmundur S. Pétursson,
umsjónarmaður verksins fyrir hönd Vegagerðarinnar.
Þessi kafli Borgarbrautar, frá Böðvarsgötu að
Egilsgötu, er svokallaður skilavegur, það er vegur
sem hefur verið í umsjá Vegagerðarinnar en verður
nú skilað til sveitarfélagsins Borgarbyggðar. „En þar
sem vegurinn var svo illa farinn var ákveðið að fara
í endurbætur á honum áður en honum yrði skilað.
Samhliða var tekin ákvörðun um að endurnýja allar
lagnir í veginum, sem er í raun stærsti þátturinn í
framkvæmdinni. Þetta eru til dæmis lagnir fyrir heitt og
kalt vatn, frárennsli, rafmagn og fleira.“
Guðmundur segir að í samtali við íbúa og
verktaka hafi orðið breytingar á framkvæmd verksins.
„Við fengum ábendingar frá íbúum á svæðinu sem
töldu óráðlegt að hafa hjáleiðir um íbúagötur á borð
við Böðvarsgötu, Ólafsgötu og Skúlagötu eins og lagt
var upp með. Þá breyttum við hjáleiðinni þannig að hún
sneiddi framhjá þessum íbúagötum. Samhliða var fyrsti
áfanginn lengdur að Skallagrímsgötu.“
Borgarbraut (531)
Böðvarsgata – Egilsgata
Vegagerðin, í samstarfi við Veitur, Rarik og
Borgarbyggð, vinnur nú að endurbótum og
lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í
Borgarnesi. Framkvæmdir hófust í júlí 2022 og
verklok eru áætluð í október á þessu ári.
→
Framkvæmdin nær frá
Böðvarsgötu að Egilsgötu.
Þróttur ehf. á Akranesi átti lægsta boð í verkið upp
á rúmar 430 m.kr. og framkvæmdir hafa gengið
framar vonum. Samkvæmt útboðinu átti að gera hlé
á framkvæmdinni yfir veturinn en verktakinn óskaði
eftir því að fá að vinna eins lengi og kostur væri.
Því er verkið komið mun lengra nú en áætlað var og
hugsanlega verða verklok eitthvað fyrr. „En það er
aldrei að vita hvað kemur upp úr jarðveginum sem mun
hugsanlega tefja verkið því þarna er mikið af gömlum
lögnum,“ segir Guðmundur sem telur samstarfið við
sveitarfélagið, Veitur og Rarik hafa verið mjög farsælt.
Helstu magntölur eru:
→ Gröftur lagnaskurða 9.300 m3
→ Fráveitulagnir 1.300 m
→ Kaldavatnslagnir 650 m
→ Hitaveitulagnir 950 m
→ Malbikun 9.700 m2
→ Hellulögn 1.400 m2
Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2023.
↑
Stór hluti af framkvæmdinni sneri að endurnýjun lagna í vegstæðinu.
↑
Fyrsti áfangi verksins er tilbúinn.