Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 19.06.2023, Blaðsíða 19
Framkvæmdafréttir nr. 725
3. tbl. 31. árg.
19
Umferðargreinir sem mælir
þungaumferð
Stefnt er á kaup á nýjum umferðargreini sem getur
mælt þyngd ökutækja með meiri nákvæmni. „Þessi nýi
umferðargreinir er einfaldur í uppsetningu og lítið mál
að færa hann á milli staða. Tækið er fest undir brýr í
tvær til þrjár vikur í senn og mælir þyngd ökutækja og
stærð þeirra. Nákvæmni tækisins er meiri en annarra
umferðargreina þar sem það getur mælt þyngd
ökutækja niður á hvern öxul,“ lýsir Birkir.
Vonir standa til að tækið verði tekið í notkun
í sumar. Hugmyndin er að prófa tækið fyrst á
Kotstrandabrúnni á nýja Suðurlandsveginum. „Okkur
langar að mæla þungaumferðina út frá Reykjavík en í
framhaldinu stefnum við á að setja tækið upp á stöðum
þar sem við erum að fara að hanna vegi. Með því að vita
hver þungaumferðin er á vegkaflanum getum við með
betri nákvæmni hannað veg og sinnt viðhaldi hans.“
Birkir segir umferðargreininn ekki aðeins nýtast
við hönnun og viðhald heldur muni einnig geta
nýst öðrum deildum Vegagerðarinnar á borð við
umferðardeild, umferðaröryggisdeild og þjónustudeild
auk þess sem hugmyndir eru uppi um samstarf við
lögreglu.
Jarðsjárdróni eykur nákvæmni
rannsókna
„Með jarðsjárdrónanum verður stigið stórt skref í
hugbúnaði og úrvinnslu jarðsjárgagna,“ segir Birkir.
Hingað til hefur jarðsjá, sem eru hluti af hátæknimælibíl
Vegagerðarinnar, verið notuð til að meta þykkt laga á
vegum. „Sú jarðsjá hefur hjálpað okkur töluvert en með
jarðsjárdróna aukast möguleikarnir til muna til að sjá
dýpra á nýjum veglínum.“
Dróninn kemst mun víðar en hefðbundin jarðsjá
og hann má nota til að auka öryggi í rannsóknum, auka
nákvæmni áætlana og magntöku. „Við getum til dæmis
skoðað tilvonandi vegsvæði og áætlað með betri hætti
hvar við tökum rannsóknarholur, hvar best er að fara
í rannsóknarboranir og fengið betri upplýsingar um
legu klappa. Með upplýsingum úr jarðsjárdróna er
hægt að draga úr því að upp komi óvæntar aðstæður
við framkvæmdir,“ segir Birkir og tekur dæmi; „Segjum
sem svo að tvær rannsóknarholur gefi til kynna að
stutt sé niður á klöpp. Við framkvæmdir kemur síðan
í ljós að milli holanna tveggja er allt annar jarðvegur.
Með jarðsjárdróna getum við séð fyrir slíkar aðstæður,
metið hvaða möguleikar eru í stöðunni og gert
ráðstafanir fyrirfram í stað þess að bregðast við á
staðnum. Þannig verður hægt að gera ráð fyrir þessu í
kostnaðaráætlun.“
Með jarðsjárupplýsingum er einnig hægt að
fækka þeim holum sem þarf að bora auk þess sem
hægt er að para saman niðurstöður úr jarðsjá og
tilraunaborunum sem gerir rannsóknir mun skilvirkari.
Þá getur dróninn einnig búið til þrívíddarmyndir af
jarðlögum.
Dróninn sem stefnt er á að kaupa og taka í
notkun í sumar er um 2,5 m í þvermál. Nokkur vandi
er að stýra svo stórum dróna en Birkir segir starfsfólk
innan Vegagerðarinnar hafa góða reynslu af því fljúga
drónum, en þó ekki af þessari stærð.
↑
Hátæknimælibíll Vegagerðarinnar. Framan á bílnum
er jarðsjá sem hingað til hefur verið notuð til að meta
þykkt laga á vegum. Nýr jarðsjárdróni sem til stendur
að kaupa mun komast mun víðar en hefðbundin jarðsjá
og hann má nota til að auka öryggi í rannsóknum, auka
nákvæmni áætlana og magntöku.