Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Page 6

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Page 6
Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu: Glatt á Félagar í Sjálfsbjörg á höfuð- borgarsvæðinu fögnuðu 45 ára afmæli félagsins 23. júní sl. Mæting fór fram úr björtustu vonum og skemmtu gestir sér kon- unglega. Boðið var upp á kaffi og kökur og var það mat manna að af- mælið hafi tekist vel í alla staði. Einar Andrésson, sem situr í vara- stjórn Sjálfsbjargar á höfuðborgar- svæðinu, mætti með skemmtarann og spilaði fjörug lög við góðar und- irtektir gesta. Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu var stofnað 27. júní árið 1958. Frumkvöðlar að stofnun þess voru aðallega Sigursveinn D. Kristinsson og Gunnar Jóhannsson frá Varma- læk. Félagið festi kaup á kjallaraí- búð í Marargötu 2 þar sem starfsem- in fór fram um nokkurra ára skeið. Árið 1974 var starfsemin flutt í Sjálfsbjargarhúsið að Hátúni 12 þar sem það er enn til húsa. Félagið er eitt af öflugustu aðildar- félögum landssambandsins. Haldin eru spilakvöld í hverri viku, bar- áttufundir, þorrablót, dansleikir, opið hús o.m.fl. Þá hefur félagið verið duglegt við að vekja athygli á hjalla á 45 ára afmæli félagsins Hnlda Steinsdóttir, einn af frumkvöðlum Sjálfsbjargar, mcetti auðvitað á opið hús til að gleðjast með félögum sínum. Hún starfar nú innan Reykjavíkurfélagsins. Við hlið hennar situr Sigfús Brynjólfsson. Boðið var upp á kaffi og kökur og var það mat manna að afmælið hafi tekist vel í alla staði. aðgengis- og kjaramálum fatlaðs fólks. Félagar í Sjálfsbjörg á höfuðborg- arsvæðinu eru nú um 1.560 talsins. Formaður þess er Þórir Karl Jónas- son. 6

x

Sjálfsbjargarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.