Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Síða 16

Sjálfsbjargarfréttir - 01.11.2003, Síða 16
Kriki Miklar endurbætur átt sér stað Hér sést bústaðurinn sem Reykjavíkurborg gaf félaginu. Hann er 30 fermetrar að stœrð og dugir því skammt þegar um fjölsóttar uppákomur hjá félaginu er að rœða. Aðgengi fyrir fatlaða er mjög gott í Krika. Okkur langar annað hvort til a6 byggja vib bústaöinn eða gera nýjan. Hann er bæði gamall og of lítill. Miklar endurbæt- ur hafa átt sér stað í Krika, útivistarsvæði á Vatns- enda sem félagar í Sjálfs- björg hafa haft afnot af frá árinu 1994. Landið, sem er um einn hektari, er staðsett sunnanmegin við Elliðavatn og þykir afar fallegt. „Endurbætur og viðgerðir hafa staðið yfir rneira og minna sl. sex ár,“ segir Sigurður Pálsson, um- sjónarmaður Krika. „Aðalfram- kvæmdimar voru fyrir um fimrn árum, en þá voru byggðar tvær bryggjur fram í vatnið og lagðir göngustígar, sem fólk í hjólastól og göngufólk getur nýtt sér. Nú er ver- ið að endurbyggja bryggjuna, sem er steinbryggja og hlaðin fram í vatnið. Isrek hefur skemmt hana svolítið, þannig að ákveðið var að ráðast í þessar framkvæmdir nú.“ Að sögn Sigurðar er kostnaður framkvæmdanna í höndum Kópa- vogsbæjar sem og framkvæmd þeirra. „Kópavogsbær hefur verið svo vinsamlegur við okkur alla tíð og styrkt okkur og hjálpað við að gera þær endurbætur sem á hefur þurft að halda. Kriki er leiguland en félagið greiðir hins vegar afskap- lega lítið í leigu. Magnús heitinn Hjaltested, bóndi á Vatnsenda, af- henti félaginu svæðið til afnota á sínum tíma. Hann hafði samband við okkur að fyrra bragði og vildi að þar gætu fatlaðir notið útivistar.. Reykjarvíkurborg gaf félaginu síð- an 30 fermetra bústað sem við sett- um upp á svæðinu. Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu lét reisa bú- staðinn og síðan höfum við gróður- sett heilmikið af plöntum og trjám. Þá var smíðaður sólpallur í kringum bústaðinn sem hefur kornið sér af- skaplega vel.“ Sigurður segir ýmislegt á döfinni í Krika, þ.e.a.s. þegar félagið hafi fjárhagslegt bolmagn til þess. „Okkur langar annað hvort til að byggja við bústaðinn eða gera nýj- an. Hann er bæði gamall og of lítill. Síðastliðið sumar vorum við með uppákomur í Krika, sem voru nrjög ljölsóttar, og þá kom vel í ljós hversu lítill bústaðurinn er. Við erum afar þakklát fyrir að hafa þetta svæði, sem er ómetanlegur útivistar- staður fyrir fatlað fólk á höfuðborg- arsvæðinu,“ segir Sigurður að lok- um. Texti: Kristrún M. Heiðberg. 16

x

Sjálfsbjargarfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjargarfréttir
https://timarit.is/publication/1896

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.