Goðasteinn - 01.09.1964, Blaðsíða 5
Bjön? Fr. Björnsson:
Skófjaskóli
slofnaður
í þeim fáu orðum, sem hér fara á eftir, verður lítillega drepið
á örfá atriði um stofnun héraðsgagnfræðaskólans að Skógum undir
Eyjafjöllum, eins og hann er að jafnaði nefndur. Svo sem ætla má
verður í tímaritsgrein engu atriði gerð þau skil, sem annars væri
nauðsyn, ef skrásetja skyldi sögu skólans og aðdraganda að
stofnun hans. Slík sagnritun verður að bíða síns tíma.
Lög um héraðsskóla frá 12. febr. 1940 sögðu svo fyrir m. a.,
að héraðsskóli skyldi vera á hentugum stað innan Rangárvalla-
og Skaftafellsþinga. Nánar kvað löggjöfin eigi á um staðsetningu
hins áformaða héraðsskóla. Búast mátti eðlilega við því, þareð
sýslurnar voru tvær, sem aðild áttu að skólanum, að það vefðist
nokkuð fyrir, hvar skólinn skyldi rísa. Þetta efni þurfti nánar
að ræðast heima fyrir og þeir aðilar, sem forgöngu áttu að hafa
um framkvæmdir, að fá nokkuð svigrúm til athugunar um staðar-
val. Var hér því í upphafi nokkur vandi á höndum. Sýslunefndir
beggja sýslna ásamt fulltrúa ríkisins áttu að skera úr um þetta,
og freista varð þess til hins ýtrasta, að ná viðhlýtandi samkomu-
lagi. Að öðrum kosti mátti telja skólamálið úr sögunni, a. m. k.
fyrst um sinn. Var því litið til allra átta og varlega farið.
Það var einróma skoðun Rangæinga, að hin mesta nauðsyn væri
Goðasteinn
3