Goðasteinn - 01.09.1964, Síða 7
Kom nú til kasta sýslunefndanna að svara þessu rausnarboði.
Á fundum þeirra á öndverðu vori 1944 hlaut málsefnið þá af-
greiðslu, að sýslunefnd Rangárvallasýslu samþykkti samhljóða að
taka tilboðinu með þcim skilyrðum, sem sett voru, og hið sama
gerði sýslunefnd Vestur-Skaftafellssýslu. Létu báðar sýslunefndir
í ljós þakkarhug sinn til gefendanna fyrir góða gjöf, sem jafn-
framt leysti með ánægjulegum hætti nokkurt vandamál.
Með þessum aðgerðum var héraðsskólinn kominn vel af stað
og vandi staðarvalsins farsællega leystur, héraðsskólinn skyldi
reistur að Ytri-Skógum.
Næsta skrefið var stigið með því að kjörin var undirbúnings-
og framkvæmdanefnd til byggingar héraðsskólans. Hélt nefndin
fyrsta fund sinn að Skógum 12. júlí 1944. Nefndarmenn voru:
Af hálfu Rangæinga Björn Fr. Björnsson, sýslumaður; síra Er-
lendur Þórðarson, Odda og síra Sveinbjörn Högnason, Breiða-
bólstað. Af hálfu Skaftfellinga Gísli Sveinsson, sýslumaður, Eyj-
ólfur Guðmundsson, hreppstjóri, Hvoli og Sigurjón Kjartansson,
kaupfélagsstjóri, Vík. Formaður nefndarinnar var skipaður af
fræðslumálastjórninni Helgi Elíasson, fræðsiumálastjóri. Á þess-
um fundi var m.a. gengið frá kaupum á húseignum á jörðinni.
Keyptur bústofn, búvinnuvélar ýmiskonar og annað, sem til bú-
rekstrar þurfti. Fyrri búendur voru að hætta búskap og nefndin
hafði áhuga á því, að áfram héldist fuil nytjun jarðarinnar. Var
auðséð, að búskapurinn yrði að vera stór nokkuð í sniðum, ef
standa ætti undir þörfum skólans. Var síðar ráðinn sérstakur
gjöfinni. Þannig varð öll jörðin ásamt tilheyrandi húsum eign
bústjóri. Þá voru keyptir þeir hlutar jarðarinnar, sem ekki fylgdu
sýslufélaganna.
Var nú hafin athugun og undirbúningsvinna á ýmsu því, sem
þurfti til byggingarframkvæmda. Tók það nokkurn tíma. En hinn
19. marz 1946 skilaði húsameistari ríkisins, Guðjón Samúelsson,
fullunnum teikningum af skólabyggingunni, og voru þær einróma
samþykktar af framkvæmdanefnd. Þessu næst skyldi ákveða skóla-
stæðið. Skömmu síðar eða 6. maí s. á. komu af því tilefni að
Skógum framkvæmdanefndin, Guðjón Samúelsson, húsameistari
Goðasteinn
5