Goðasteinn - 01.09.1964, Qupperneq 8
og Gústaf E. Pálsson, verkfræðingur. Var víða litazt um og borið
niður, jarðvegurinn kannaður o.fl. Að lokum fékkst einhuga sam-
þykkt aðila um skólastæðið, þar sem nú standa höfuðbyggingar
skólans.
Um sumarið hófust síðan framkvæmdir. Voru þær fengnar í
hcndur Almenna byggingafélaginu í Reykjavík og framkvæmda-
stjóra þess Gústafi E. Pálssyni Yfirsmiður var ráðinn Matthías
Einarsson, Vík í Mýrdal. Fjöldi manna var þarna að starfi og
voru flestir úr skólahéraðinu, Rangæingar og Skaftfcllingar. Fram-
kvæmdanefndin fylgdist frá upphafi með öllum aðgerðum og
kom fram sínum óskum og vilja um einstök atriði. Það var strax
ljóst, að eigi þótti verða á betra kosið um úrlausnir í framkvæmd-
um, verkhraða og áhuga starfsmanna um að allt færi sem bezt
úr hendi. Þar lofar verkið þá, sem að unnu.
Flaustið 1949 var héraðsskólinn svo vel af grunni risinn og að
innan búinn, að rétt þótti að hefja þar kennslu. Að vísu var
æðimargt, sem betur þurfti að ganga frá, t. d. var sundlaugin
ófullgerð að mestu og tók það mörg ár að koma henni upp. Að
öðru Jeyti mátti segja, að aðstaða til skólahalds væri sæmilega
viðunandi.
Eðlilega þurfti að afla stórfjár til byggingarframkvæmdanna,
og liggur ærin saga að baki þeirri hlið málsins, og kannske ekki
svo ómerk. En fjármálin eiga líka sínar dökku hliðar og ekki vert
að flíka þeim, nema nauðsyn beri til og það er að sjálfsögðu oft,
en ekki hér. Hin bjarta hliðin blasir við, hinar fögru og svip-
miklu byggingar að Skógum, og allt starfið, sem þar hefur verið
innt af hendi um 15 ára skeið. Þessa ber þó að geta: Ríkissjóður
greiddi 3/4 hluta kostnaðar en héruðin V4 hluta. Fjárveitingar
af hálfu ríkisins voru misjafnar nokkuð, en héruðin tóku lán, ef
með þurfti, til þess að standast tilfallandi greiðslur af verkinu,
sem gckk hratt. Oft hafði ríkissjóður ekki við. Héruðin lögðu
hart að sér og stóð sjaldnast á sýslunefndum að leggja fram
fjármagn af sinni hálfu. Ætíð reyndist hin bezta samvinna með
framkvæmdaaðilum, sýslum og ríki, og jafnan reynt að þræða
þær leiðir, sem sízt lágu til þess, að upp ræki á sker um fram-
kvæmdir. Tókst alls yfir vel um það.
6
Goðasteinn