Goðasteinn - 01.09.1964, Page 10

Goðasteinn - 01.09.1964, Page 10
einlægustu vonir við þcnnan skólastað bundnar um það, að hon- um megi auðnast að senda á hverjum tíma frá sér hina nýtustu þegna, sem bæði vilja, þora og kunna að fást við þau verkefni, sem þeim eru í hendur fengin, þegar gengið er tii starfa á hinum ýmsu sviðum þjóðlífsins. Með þessu hugarfari var unnið að bygg- ingu skólans og í þessum anda hefur síðan jafnan verið leitazt við að vinna í fimmtán ára skólastarfi. Megi svo ætíð verða. GUÐNÝ1SKÓGUM Guðný Þorsteinsdóttir, kona Benedikts Högnasonar í Skógum, kemur við ævisögu sr. Jóns Steingrímssonar. Nefnir prestur hana stórhöfðinglega velgerða- og vinkonu sína og hefur þetta um hana að segja: „Af góðgerðum hennar og gestrisni vildi oft undanganga hjá henni, og hafði ég þá, sem betur megandi, oft orðið vel við nauðsynjabón hennar, sem verðugt var. Þá hún sálaðist seint um vetur, var mikill matarskortur á milli manna. Þá tók heimur að flimtra: „Henni var betra að gefa minna, að nóg væri til begrafelsis hennar“. En jafnsnart gaf guð 3 hundruð fiska land- hlaup á fjöru hennar, að ei varð útförin einasta gerð í heiðar- legan máta, heldur gaf svoddan blessan mörgum nauðstöddum nóga lífsbjörg þar í kring“. 8 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.