Goðasteinn - 01.09.1964, Síða 14
Magnúsar cr núverandi skólastjóri, Jón R. Hjálmarsson, sem hcfur
sýnt, að hann cr ekki eftirbátur fyrirrennara síns.
Jón R. Hjálmarsson nýtur almenns trausts. Hann er þekktur
fyrir stjórnsemi og góða hæfilcika til þess að gegna því vanda-
sama starfi að stjórna fjölmennum skóla.
I Skógum hafa verið 839 nemendur frá upphafi. Þar af meir
en helmingur úr skólahéruðunum - 317 úr Rangárvallasýslu og
131 úr Vestur-Skaftafellssýslu. Af þessum tölum má sjá hvílík lyfti-
stöng til menntunar skólinn hefur þegar verið fyrir æsku þessarra
byggðarlaga.
Ekki er gert ráð fyrir, að unglingar, sem dvelja á héraðsskólum
verði það sem kallað er lærðir menn, enda ckki við því að búast,
ef námi er hætt eftir 2-3 vetra skólavist. Margir nemendur frá
Skógaskóla hafa tekið landspróf og haldið áfram námi með ágæt-
um árangri. Þeir sem hætta skólagöngu, eftir að hafa verið í
héraðsskólum, hafa fengið nauðsynlega undirstöðumenntun. Það
mun vera auðvelt fyrir þá, sem hafa tíma og áhuga, að bæta við
þekkinguna með sjálfsnámi. Gömlu íslenzku alþýðuskólarnir (Á
Núpi í Dýrafirði, Eiðum á Fljótsdalshéraði, Hvítárbakka í Borg-
arfirði og Laugum í Þingeyjarsýslu) voru í mörgum atriðum frá-
brugðnir núverandi héraðsskólum sveitanna.
Nemendur þessarra skóla voru yfirleitt allmiklu eldri en nem-
endur héraðsskólanna eru nú. Mun það ekki fjarri lagi, að meðal-
aldur nemenda þá hafi verið um eða rösklega 20 ár. Skólatíminn
var yfirleitt tveir vetur, hvort árið frá byrjun vetrar til sumar-
mála. Engir þessarra skóla veittu nein prófréttindi svo sem gagn-
fræða- eða landspróf nú gefa.
Alþýðuskólar þessir höfðu í verulegum atriðum mótazt af hug-
sjónum hinna merku dönsku lýðháskóla, sem á síðari helming 19.
aldar og fram á þessa öld höfðu valdið menningarlegum straum-
hvörfum í alþýðumenntun dönsku þjóðarinnar. Áhrifa dönsku lýð-
háskólanna, eins og þeir voru jafnan kallaðir (Folkehöjskolen), -
gætti einnig og gætir enn meðal frændþjóðanna, Norðmanna og
Svía.
Höfuðspámaður þessarar merku öldu þjóðernislegrar og kirkju-
legrar vakningar var skáldið Grundvig. Fjölmargir merkir skóla-
12
Goðasteinn