Goðasteinn - 01.09.1964, Qupperneq 25
skeytamaður, 3 bifreiðastjórar, 1 skipstjóri og útgerðarmaður og
1 sjómaður.
Háskólaborgarar:
2 læknar, 1 prestur, 1 verkfræðingur, 1 stundaði nám í BA deild
en vinnur nú sem sérfræðingur í meðferð flókinna reikningsvéla.
Stúlkurnar skipa nú flestar heiðurssæti húsfreyjunnar, og ein
þeirra er auk þess kennari við Hjúkrunarkvennaskóla fslands og
önnur sérfræðingur í sjúkraleikfimi.
Þannig virðist sá neisti, sem hér kviknaði, hafa orðið að glóð,
sem hvatt hefur nemendurna til framhaldsnáms og aflað þeim
álits, þegar út í lífið og starfið kom. Og þessir ágætu nemendur
hafa öðrum fremur sýnt skólanum tryggð í verki. Þeir heimsóttu
okkur á 10 ára afmæli skólans og færðu honum að gjöf vandaðan
ræðustól, hinn þarfasta grip.
Ég vil enda þessar fáu og fátæklegu línur með sérstöku þakk-
læti til þessarra nemenda minna og samstarfsmannanna. Við vorum
allir lítt reyndir, og auðvitað varð ekki hjá því komizt, að einhver
mistök yrðu, en þau urðu okkur síðar dýrmæt reynsla. Enda þótt
byrjunarörðugleikarnir virtust í fyrstu óyfirstíganlegir, fór allt vel
og þessi ungi skóli öðlaðist þegar á fyrsta starfsári það álit, að
næsta vetur varð að neita allmörgum nemendum um skólavist,
þótt helmingi fleiri nemendur væru þá teknir í skólann.
Megi heill og hamingja ávallt fylgja nemendum Skógaskóla,
hvert, scm leið þeirra liggur!
FRÁ SR. KJARTANI I SKÓGUM
Maður hafði orð á því við sr. Kjartan Jónsson, að það væri
fagurt í Skógum. „Fagurt en magurt“, svaraði sr. Kjartan.
Sr. Kjartan fékk gott ferðaveður, er hann flutti suður að Elliða-
vatni. Kom hann þá við í Hlíð undir Eyjafjöllum hjá vinum sín-
um cg sagði: „Ekkert skil ég í guði mínum að mála Fjöllin mín
svona falleg, þegar ég er að yfirgefa þau“.
Goðastemn
23