Goðasteinn - 01.09.1964, Síða 26
Baldur Óskarsson:
Röilil úr liópi neineiiila
Fyrir fimmtán árum byggðu Rangæingar og Skaftfellingar stökk-
pall, sem kallast héraðsskóli. Hann reis að Skógum í skjóli óbrigð-
ulla jökla, þar sem tíminn stendur í stað í fjöllunum, þar sem
vatnið flýr jöklana, steypist með söng fram af heiðarbrúninni og
kastar sér í hafið til að finna þá aftur í æðra veldi.
Við, sem komum þangað af láglendinu, gengum fjöllunum á
hönd. Þau ólu okkur upp, meðan við fótuðum okkur á stökkpall-
inum, og hvar sem við koraum niður fundum við áttina til þeirra.
Og hvort sem við komum niður í sömu spor, feti framar eða
aftar, var hreyfingin nokkurs verð, því kyrrstaða er andstæð, jafn-
vel þar sem lifað er í samræmi við náttúruna.
I þessum skóla hefst undanrás í lífshlaupi æskunnar í tveimur
héruðum, og úr öllum landsfjórðungum hafa unglingar komið að
Skógum til að styrkja sig fyrir það hlaup.
Ég óska Skógaskóla þess, að hann megi alltaf verða stökkpallur,
þar sem æskan hefur sig til flugs með sýn til fjallanna.
24
Goðasteinn