Goðasteinn - 01.09.1964, Qupperneq 27
Jón R. Hjálmarsson:
Sltíllillll'fllll SltÍHiilsltíllil
Skólanefnd Skógaskóla tók til starfa sumarið 1949 og hélt fyrsta
fund sinn hinn 24. júní þ. á. Skólanefndin hefur ætíð verið skipuð
miklum öndvegis- og dugnaðarmönnum, sem sífellt hafa borið hag,
veg og velferð þessarar ungu menntastofnunar fyrir brjósti og
hlúð að henni, svo sem framast mátti verða. Einnig hefur allt
samstarf af skólans hálfu við þessa menn verið einstaklega ánægju-
legt, svo að ekki hefur verið á betra kosið.
Skólanefndin er skipuð fimm mönnum. Menntamálaráðherra
skipar formann, en sýslunefndir í Rangárvallasýslu og Vestur-
Skaftafellssýslu kjósa í hana tvo fulltrúa hvor.
Björn Fr. Björnsson sýslumaður var í upphafi skipaður formað-
ur nefndarinnar og hefur verið það öll starfsár Skógaskóla að
einu undanteknu, skólaárinu 1955-1956, er Magnús Sigurlásson,
Eyrarlandi í Þykkvabæ, gegndi starfinu. Af hálfu sýslunefndanna
hafa þessir menn mætt á fundum skólanefndarinnar sem aðal-
menn eða varamenn, og eru þeir hér taldir eftir því, sem þeir eru
skráðir í gjörðabók skólanefndarinnar:
Bogi Thorarensen, hreppstjóri og sýslunefndarmaður, Kirkjubæ.
Óiafur Sveinsscn, sýslunefndarmaður, Stóru-Mörk,
Jón Kjartansson, sýslumaður, Vík,
Jón Þorvarðarson, prófastur, Vík,
Jón Þorsteinsson, sýsluskrifari, Norður-Vík,
Páll Björgvinsson, oddviti, Efra-Hvoli,
Jónas Gíslason, sóknarprestur, Vík,
Óskar Jónsson, bókari, Vík,
Gissur Gissurarson, sýslunefndarmaður, Selkoti,
Oddur Sigurbergsson, kaupfélagsstjóri, Vík,
Einar Oddsson, sýslumaður, Vík.
Goðasteinn
25