Goðasteinn - 01.09.1964, Side 40

Goðasteinn - 01.09.1964, Side 40
Englandi og víðar. Hann var kennari við Skógaskóla veturinn 1955-56 og kenndi ensku, landafræði og fleiri greinir. Síðar var hann kennari við Hagaskólann í Reykjavík, Verzlunarskóla Is- lands og víðar. Guðmundur var kvæntur Bergljótu Líndal og áttu þau börn. Guðmundur varð skammlífur og andaðist í Reykja- vík vorið 1962. Hreinn Ragnarsson, f. 31. des. 1940, frá Reykjum í Hrútafirði. Hann hóf nám í Reykjaskóla, fór síðar í Menntaskólann á Akur- eyri og lauk stúdentsprófi þar 1959. Kenndi við Skógaskóla vet- urinn 1960-61 íslenzku og fleiri greinir. Hann er nú kennari á Raufarhöfn. Hreinn er kvæntur Guðrúnu Sveinsdóttur og eiga þau börn. Kolbeinn Þorleifsson, frá Reykjavík. Stúdent frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1959. Kenndi við Skógaskóla einn vetur 1961-62. Hann er nú við guðfræðinám í Háskóla íslands. Arnaldur Árnason, f. n. okt. 1941, frá Ytri-Skógum undir Eyja- fjöllum. Hann hóf nám í Skógaskóla og lauk hér landsprófi 195S. Stundaði nám í Menntaskólanum á Akureyri og lauk stúdents- prófi 1962. Kenndi við Skógaskóla veturinn 1962-63 íslenzku og fleira. Er við nám í Háskóla Islands. Kennarar skráðir hér að framan hafa verið ýmist skipaðir eða settir, en einnig hafa allmargir stundakennarar starfað hér við skólann, auk þeirra Brittu Gíslason og Guðrúnar Hjörleifsdóttur, sem þegar hafa verið taldar. Þórður Tómasson, f. 28. apríl 1921, frá Vallnatúni undir Eyja- fjöllum. Hann hefur kennt söng við Skógaskóla frá því haustið 1959. Hann hefur jafnframt verið safnvörður í Byggðasafninu í Skógum, söngstjóri og organleikari í Eyvindarhólakirkju, starfs- maður Þjóðminjasafnsins við þjóháttaskráningu og gegnt fleiri störfum. Þórður er kunnur þjóðsagnasafnari. Eftir hann eru bæk- urnar Eyfellskar sagnir I - III og Sagnagestur I - III auk fjölda greina í blöðum og tímaritum. 38 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.