Goðasteinn - 01.09.1964, Side 49

Goðasteinn - 01.09.1964, Side 49
I upphafi skólastarfs í Skógum eignaðist skólinn annað ljóð, sem einnig hefur oft verið sungið sem skólasöngur, einkum fyrstu árin. Er það kvæði Stefáns Hannessonar kennara að Litla-Hvammi í Mýrdal, „Þá birtir yfirNeðanmáls á blaðið, þar sem hann skráði kvæðið, skrifaði hann: „Bið skólaheimilið í Skógum að þiggja þetta ljóð og syngja líf í það.“ Stefán Hannesson var fæddur 16. marz 1876 og ólst upp við kröpp kjör í hörðu árferði. En ótrauður brauzt hann fram til mennta, varð kennari og sem slíkur starfaði hann meira en háifa öld í Skaftafellssýslu, lengst af í Mýrdal. Ungur gerðist hann einn af merkisberum ungmennafélagsskaparins, og hvar sem hann fór, var hann óþreytandi boðberi fræðslu, framfara og menningar. Hann var einn af vormönnum Islands. Stefán heimsótti Skóga- skóla nokkrum sinnum, flutti erindi, og las upp ljóð. Hann er nú látinn fyrir tveimur árum. J. R. H. Goðasteinn 47

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.