Goðasteinn - 01.09.1964, Side 51
]ón R. Hjálmarsson:
Dættir nm finnntán árn sknlíistnrf í Slináuni
Á þessu herrans ári, 1964, hefur héraðsgagnfræðaskólinn að
Skógum starfað fimmtán ár, því að haustið 1949 hófst hcr kennsla,
og fyrsta skólasetningin fór fram við hátíðlega athöfn hinn 19.
nóvember.
Og þótt aldurinn sé ekki hár og þessi tímamót ekki sérlega
merk, þá þykir samt hlýða að minnast þeirra á einhvern hátt.
Varð það að ráði, að tímaritið Goðasteinn, sem út er gefið hér
í Skógum, helgaði skólanum eitt hefta sinna þetta árið. Er ekki
ósennilegt, að seinna muni þykja að því nokkur fengur að hafa í
höndum frásagnir um upphaf og fyrstu starfsár skólans ritaðar
af þeim mönnum, er sjálfir lögðu hér hönd á plóginn. Þá var það
brýn nauðsyn og mátti varla lengur dragast, að hafizt væri handa
um að gera skrá yfir kennara og nemendur, þar sem fjöldi þeirra
er þegar kominn nokkuð á níunda hundrað. Bekkjarskrár og próf-
bækur eru í rauninni einu heimildirnar um veru þessa stóra nem-
endahóps hér í skólanum. Þessar bækur geta auðveldlega eyði-
lagzt eða glatazt, og slíkt tjón kynni að reynast erfitt að bæta.
Skólastarfið hér í Skógum má hiklaust segja að gengið hafi
vel. Hingað hafa valizt mjög vel hæfir og áhugasamir kennarar,
sem ætíð hafa metið það mest að ná sem beztum árangri í starfi
sínu. Þá hafa nemendur velflestir reynzt góðir skólaþegnar, er
stundað hafa nám sitt af alvöru og festu, svo að oft hefur verið
ánægjulcgt að fylgjast með vexti þeirra til sálar og líkama. Eng-
um getum þarf að því að leiða, að skóli þessi hefur orðið mikil-
væg lyftistöng til mennta og menningar þeim ungmennum, er hing-
að hafa sótt víðsvegar að og einkum þá æskufólki úr sjálfu skóla-
héraðinu, sem nær frá Þjórsá til Skeiðarár, en úr byggðarlögum
þeim hafa flestir nemendur komið. Og þótt ég taki svo djúpt í
Goðasteinn
49