Goðasteinn - 01.09.1964, Síða 52
árinni um árangur af því happaverki að hefja hér skólastarf, þá
er þó enn aðeins um byrjun að ræða, þar sem skólinn mun vart
hafa slitið barnsskónum. í framtíðinni bíður aðalstarfið. Á það
vonandi eftir að eflast og margfaldast og bera þúsundfaldan á-
vöxt til heilla og hamingju landi og lýð.
Rangæingum og Skaftfcllingum er það til mikils sóma, hve vel
þeir hafa staðið saman um þennan skóla sinn frá byrjun. Sú góða
samvinna og heilladrjúgi árangur er mörgum mætum mönnum og
konum að þakka og þó einkum meðlimum skólanefndarinnar úr
báðum sýslum og þá alveg sérstaklega Birni Fr. Björnssyni sýslu-
manni, sem lengst af hefur verið formaður skólanefndar þessi ár,
og má með sanni kalla föður Skógaskóla. Auk þess ber að minnast
á þessum vettvangi ráðherra, yfirmanna fræðslumála, alþingis-
manna og margra annarra, sem á liðnum árum hafa sýnt þessari
ungu menntastofnun skilning og velvilja.
SkillaliúsiiæOiQ
Húsakostur skólans hefur að mörgu leyti verið góður, en aldrei
nægilega mikill. Upphaflega var líka ráðgert að hér sætu aðeins
60-70 nemendur, og fyrsta starfsárið voru þeir liðlega fjörutíu. En
upp frá því hafa þeir alltaf verið um 100 og þar yfir, og flestir
hafa þeir orðið 117. Ekki hafa allir dvalizt í heimavistinni, þvi
að yfirleitt eru fáeinir á einkaheimilum hér við skólann. Nú í
ár eru nemendur xn að tölu.
Til þess að ráða nokkra bót á þrengslum og geta veitt fleiri
nemendum viðtöku var eystra húsið á gömlu Skógajörðinni lag-
fært og notað sem heimavist um nokkurra ára skeið. Einnig voru
búningsklefar og annað húsrými tengt sundlauginni notað um ára-
bil sem heimavistarherbergi. Árið 1955 var loks hafizt handa um
smíði nýrrar heimavistar og kennaraíbúða í sérstöku húsi austan
aðalskólans. Var því verki lokið og flutt í nýja húsið snemma árs
1957. Þessi þarfa framkvæmd réð bót á mörgum vanda og leysti
af hólmi bráðabirgðahúsnæði það, sem lengi hafði verið notað.
50
Goðasteinn