Goðasteinn - 01.09.1964, Side 53
Þá var næst hafizt handa við að smíða sundlaug skólans. Sund-
laugarhúsið sjálft hafði verið steypt upp með skólanum í byrjun,
en árum saman stóð tóftin auð og tóm og til engra nytja. Það var
því mikið fagnaðarefni, er sundlaugin var loks fullsmíðuð og
tekin í notkun við hátíðlega athöfn snemma árs 1960.
Frá upphafi fékk Skógaskóli rafmagn frá eigin ljósavélum. Voru
þær hafðar í skúr skammt frá skólanum, og í sama húsi fór fram
verknámskennsla pilta. Snemma í september 1961 kviknaði í véla-
húsinu og brann þar allt, sem brunnið gat, þar á meðal þrjár
ljósavélar, öll smíðakennslutæki og margt fleira, er þar var geymr.
Var þetta mikið tjón, en fátt er svo með öllu illt að ekki boði
nokkuð gott. Rafveitur ríkisins höfðu um þetta leyti lokið að
leggja raftaugar undir Vestur-Eyjafjöll. Ráðamenn þeirra brugðust
vel við, er til þeirra var leitað, og hröðuðu sem þeir máttu að
ljúka við raflögn alla leið að Skógum sama haust, svo að skóla-
starf tafðist aðeins óverulega vegna brunans. Húsnæði fékkst fyr-
ir verknám pilta í barnaskóla sveitarinnar, sem þá var nýlega
byggður hér í túnfætinum, og þar hefur það verið síðan.
Þetta er í fáum orðum yfirlit yfir húsnæðismál skólans. Mjög
skortir á að húsrými sé hér nægilegt, og hefjast verður handa
sem fyrst og reisa íbúðir handa kennurum, heimavistir nemenda,
hús yfir verknám, tvær kennslustofur, þar af aðra fyrir sérkennslu
í eðlis- og efnafræði, þvottahús, geymsluhús og fleira.
Viðhald skólahúsa hefur oftast verið af skornum skammti, en
tekizt hefur þó að halda nokkuð í horfinu. Gistihúsanefnd ríkis-
ins úthlutaði skólanum verulegu fjármagni árið 1963. Var þá margt
lagfært, allt málað og fengin ný og vönduð húsgögn. Gistihús var
hér rekið um tíma s.l. sumar og gekk það vel, enda ágætlega í
sveit sett.
Kennsla og námsgreinar
Um námið get ég verið fáorður, þar sem það er um flest líkt
því, er gerist í öðrum skólum gagnfræðastigsins. Nemendur 3.
Goðasteinn
5i