Goðasteinn - 01.09.1964, Qupperneq 57
Rekstur mötuneytisins krefst mikils bókhalds og fjársýslu og hefur
William Möller kennari haft þau störf með höndum um langt
árabil.
Svo mikill fjöldi starfsstúlkna hcfur unnið við mötuneytið frá
upphafi um lengri eða skemmri tíma, að of langt yrði upp að
telja. En ráðskonurnar, þær kcnur sem mestur þungi þessa ábyrgð-
armikla starfs hefur hvílt á, hafa verið þessi fimmtán ár: Gróa
Salvarsdóttir frá Reykjanesi við ísafjarðardjúp veturinn 1949-1950.
Aðalbjörg Sigtryggsdóttir frá Álandi í Þistilfirði 1950-54, þrjú og
hálft ár. Guðrún Sigurðardóttir Möller frá Sólheimakoti í Mýrdal
1954—57, þrjú og hálft ár. Sigurbjörg Pétursdóttir Ottesen frá Innra-
Hólmi, Borg,, veturinn 1957-58. Auður Guðmundsdóttir frá Núpi
og Steinunn Guðmundsdóttir frá Fögruhlíð í Fljótshlíð voru sam-
an ráðskonur frá hausti til áramóta 1958. Lilja Sigurgeirsdóttir frá
Hlíð undir Eyjafjöllum frá áramótum til vors 1959. Jóna Guðlaugs-
dóttir frá Selfossi var ráðskona veturinn 1959-60. Ingibjörg Tóm-
asdóttir frá Reyðarfirði hafði starfið með höndum veturinn 1960-
61. Haustið 1961 var ráðin til starfsins Kristbjörg Magnea Gunnars-
dóttir frá Suður-Fossi í Mýrdal, og hefur hún verið hér ráðskona
síðan eða í þrjú ár.
Auk þessarra hafa stöku sinnum aðrar stúlkur gegnt ráðskonu-
störfum vegna sundnámskeiða á vorin eða sumarmötuneyta í skól-
anum um lengri eða skemmri tíma. Þeirra á meðal eru Ásta Sveins-
dóttir frá Sveinseyri, Sigríður Ólafsdóttir frá Reykjavík, Unnur
Sigurjónsdóttir frá Efri-Holtum undir Eyjafjöllum, Sigríður Ein-
arsdóttir frá Sólheimum í Mýrdal, Erla Þorbergsdóttir frá Skóg-
um, Guðrún Þorbergsdóttir frá Hraunbæ í Álftaveri, Ingileif Andr-
ésdóttir frá Fagradal í Vopnafirði og Jónína Jóhannsdóttir frá
Kollsstaðagerði á Fljótsdalshéraði.
Shóuiækt, síjiifir nn ÍL,nnin
í Skógaskóla hefur jafnan verið mikill áhugi á skógrækt, enda
bendir heiti staðarins eindregið til þess, að hér hafi fyrrum vax-
Goðasteinn