Goðasteinn - 01.09.1964, Side 66
á Bjallanum í Eystri-Skógum, og örnefnið Bjallabrekka er ekki
þekkt þar.
Ekki eru þó öll kurl komin til grafar. Nokkuð fyrir austan
bæinn í Eystri-Skógum fellur Hofsá fram úr heiðinni. Vestan við
hana eru örnefnin Bæjarstaðir og Bæjarstaðafell. Ekki sjást þar
neinar rústir, sem minna á hof eða bæ. Mun þó vart hægt að
véfengja, að hvorttveggja hafi staðið þar í grennd í upphafi byggð-
ar. Skógasandur jaðrar við fjallsrætur austan frá Jökulsá vestur
að Skóganúp, cg staðhættir kunna að hafa breytzt uppi í heiðinni.
Má geta þess, að Jón Hjörleifsson í Eystri-Skógum hclt sig hafa
séð leyfar hofsins í flagi vestan við Hofsá. Var þar forn vegg-
hlcðsla, sem hann notaði í hleðslu á heykumli við Hofsá. Mér
virðist ekki of djarft að láta í Ijós, að Þrasi hafi byggt bæ sinn
á þessum slóðum cn flutt byggð sína þaðan á Bjallabrekku eftir
jökulhlaupið. Ekki hefur verið fýsilegur bólstaður neðan hlíða
urn þær mundir. Hugsanlegt er, að Skógaá hafi þá um sinn stíflazt
fyrir framan Skóganúp. Forn farvegur hennar virðist liggja vestur
úr Drangshlíðartúnum fyrir ofan þjóðveg og sveigja til suðurs hjá
drangnum, sem Drangshiíð ber nafn af. Kann sá farvegur þó að
vera eldri en íslandsbyggð.
Brátt hefur byggð verið sett í Ytri- og Eystri-Skógum á nú-
verandi bæjarstæðum. Ytri-Skógar nefndust í öndverðu Forsár-
skógar. Kemur það nafn fyrir í Njálu og Þorsteins sögu Síðu-
Hallssonar.
Eignir Þrasa héldust í ætt hans um aldaraðir. 1 Þorleifs þætti
jatlsskálds segir: „Það segja menn, að Þorleifur fengi þeirrar
konu, er Auður hét og væri Þórðardóttir, er bjó í Skógum undir
Eyjafjöllum, gilds bónda og stórauðigs, kominn af ætt Þrasa ins
gamla“. Þórður í Skógum var kvæntur Þórdísi dóttur Síðu-Halls.
Hann var scnur Flalldórs Örnólfssonar í Skógum, sem þar bjó á
seinni hluta io. aldar og veginn var af Merði órækju undir
Hömrum. 1 Kristni sögu eru synir Örnólfs í Skógum taldir í röð
stærstu höfðingja á landinu um 980. Njála víkur að þessum Skóg-
verjum í eggjan Hildigunnar við Flosa, er hún segir: „Minna harði
misgert Arnórr Örnólfsson úr Forsárskógum við Þórð Freysgoða,
föður þinn, og vágu bræður þínir hann á Skaftafellsþingi, Kol-
64
Goðastemn