Úrval - 01.12.1978, Blaðsíða 26

Úrval - 01.12.1978, Blaðsíða 26
24 ÚRVAL vaxið fiskur um hrygg á síðasta áratug eða svo og kannski hefur þessi vöxtur borið nokkurn keim tísku og endur- hæfing komist á hvers manns varir af þeim sökum. Það er af og frá að hugsanleg tískumyndun um endur- hæfingu eigi rætur að rekja til þeirra sem að endurhæfingu starfa. Starfslið endurhæfíngar veit best hvar takmörkin á gagnsemi endurhæfingar liggja, veit hverju er hægt að þoka áleiðis, sjúklingum í hag, og hverju ekki, þekkir velflest hin bráðnauðsyn- legu raunsæismörk. Fremur kann að vera að almenningurog ýmist starfslið heilbrig'ðisþjónustu annað en endur- hæfingar stuðli að tísku- og óraunsæisorðspori. Orsökin er vafalaust fólgin í hvötinni til að leita fanga sem víðast ,,ut aliquid fíat”, þegar önnur gagnvirk meðferð er ekki á boðstólum. Þetta þekkist víða í læknisfræðinni og ber þó að varast eins og óvininn sjálfan. Hvað sem þessu líður hefur læknis- fræðileg endurhæfing ótvírætt raun- gildi í lækningum. Gildið kann að vera breytilegt og verða áfram breyti- legt í samræmi við gagnvirkni lækninga á hverjum tíma, það er möguleikann til að lækna sjúkling fullkomlega, og tækni sem endur- hæfingarmeðferð ávinnur sér til að sinna hlutverkum á þeim breytilega vettvangi sem lækningagagnvirknin skapar. Sem dæmi um breytileikann má nefna berklaveiki. Skipulögð endurhæfíng þekkist hér á landi fyrst meðal berklasjúklinga en nú þarfnast þeir óverulegrar þjónustu í þeim efnum, að minnsta kosti þar sem nútíma berklalækningar eru stund- aðar. Einnig má nefna þann þátt gigtlækninga sem fólginn er í því að skipta um mjaðmarlið. Slík skipti kröfðust umfangsmikillar endur- hæfíngar eftir aðgerð til að árangur fengist, þar til fyrir fáum árum að ný tækni dró svo úr þeirri þörf að endurhæfingareftirspurn eftir aðgerð er nú sáralítil miðið við það sem áður var. Dæmi um breytileika endurhæfingarþarfar I gagnstæða átt eru mörg og má benda á endur- hæfíngu hjarta-, æða- og lungna- sjúklinga, geðsjúklinga og krabba- meinssjúklinga. Víst er það að endurhæfing fæst meir við tiltekna sjúklingahópa en aðra og beinist eðlilega að þeim sem ekki læknast að fullu eða búa við varanlega líkamlega eða andlega afmörkun og skerðingu eða hvoru- tveggja. Til viðbótar þessum aðfararorðum skal áréttað að óvíða í læknisfræði er meiri þörf á skýmm meðferðar- markmiðum en í endurhæfingu. Margt veldur því, meðal annars mikilvægi hagnýtingar á tíma og starfskröftum. Endurhæfíng er dýr þjonusta, tímafrek, rýmisfrek, starfs- liðsfrek og krefst nákvæmrar samhæfingar þessara þátta. Einnig ber að árétta að endurhæfing nær til fleiri starfshópa heilbrigðisþjónustu en almennt gerist í læknisfræði: lækna, hjúkmnarfræðinga, sjúkra-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.