17. júní - 17.06.1945, Síða 6

17. júní - 17.06.1945, Síða 6
4 hátt glaða og hrausta. öllum var sameiginleg gleði í hug, þegar mikið barst að landi og grös og blóm döggvuðust til hráðs þroska. Búsældin brást ekki til lengdar, ef eftir var leitað með atorku. Sólgárað haf á sólmánuði. Hvar er víðara til veggja eða hærra til lofts? Ægisdætur stíga léttfættar dans Björg og aftur björg er sótt í forðabúrið mikla. Bráðum hefir fleyið, stærra. eða smærra, fengið fullfermi. Allt leikur í lyndi þessa stundina. Hver þátttakandi stækk- ar. Hann á sinn hlut í sigurlaununum, gleði starfsins og gróðans í góðum feng. Á sólmánuði skrýðist landið, grænum möttli, ívöfðu marglitu blómskrúði. Skriðan, fjallið, núpurinn fær mildan, vinhlýjan sumarsvip. Það er engin tilviljun, að slík náttúra skapi menn og konur sem eignast andlegan ax-in, ljóð og sögur langi’a kvelda óveðurs og myrkurs, morgundýrðar sólstafaðra fjai’ða og voga. Þar lukust fjöllín og namrarnir upp. Út gengu glæsilegar fylkingar. Fornar hetjur, tröll og for- ynjur, eða ljúflingsálfar, íxienn og rneyjar. Bak við bai’áttuna ströngu bjó goðheimur byggður máttugu fólki í glæstum hýbýlum og gullnum klæðum. Þetta var uppbótin á fábreytni og erfiðleikum hius daglega líí's. Þessi uppbót gerði sér engan mun manna eða stétta. Hún vai'ð eign allra, sem eldana kynntu, höfðu liæfi- leikann til þess að lyfta sér upp yfir dægurstritið. Hún vai’ð sameign allrar þjóðarinnar, arfur frá kyn- slóð til kynslóðar, jólaeldur dapurra daga, myrkurs- tímabila þjóðlífsins; sumar innra fyrir andann, þótt úti herti hríð og kynngisnjór. öll eigum við fósturlaun að gjalda, landi, foreidrum og ættfeðrum. Við Vestfirðingar eigum líka fósturlaun að gjalda liafi, hömrum, fjöllum, fjörðum, dölum.

x

17. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/1909

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.