17. júní - 17.06.1945, Side 12
10
ísfirzkt íþróttalíf er nú smámsaman að fá meiri
festn, reglubnndnar æfingar og samfellda þjálfun, og
stöðugt fjölgar einnig íþróttagreinum þeim, sem stund
er lögð á. Mikið af æfingum fer nú fram undir hand-
leiðslu æfðra kennara, og er það mikill munur en áður
var, þegar nær þvi hver og einn vildi ráða sínn Iagi
með æfingar og athafnir.
Iþróttalífið hér hefir undanfarið verið meira og
betra en vænta mátti, miðað við allar ástæðnr. Fi'am-
undan eru mörg aðkallandi verkefni óleyst, þótt sund-
laug og fimleikahús komi hvorttveggj a, og er þar
í fremstu röð góður og myndarlegur íþróttavöllur, svo
hægt sé að iðka allar útiíþróttir með sem beztum
árangri.
Það er nú þegar orðinn svo mikill fjöldi æskumanna,
sem meira og minna sinna iþróttaæfingum, að ekki er
hægt að forsvara að láta þá búa við iþróttavöll, sem
raunar er fremur nafn en veruleiki, þótt vel mætti við
þann völl hlíta fyrir 30—40 árum, þegar tæpast var um
annað að ræða en knattspyrnu og hlaup.
Þætti þessum fylgja þrjár myndir. Fyrsta myndin
sýnir ísfirzkan knattspyrnuflokk á Alcureyri. önnur
myndin er af nemendum í íslenzkri glímu. Kennai’i
var Kjartan Bergmann Guðjónsson. Þriðja myndin cr
af fimleikaflokki kvenna og karla frá 1943. Sá flokkur
heí'ir mai’ga hildi háð.
Með stofnun Iþróttabandalags Isfirðinga er fengin
saiueiginleg yfii’stjórix íþróttamálanna. Ætti það út af
fyi’ir sig að bæta mikið úr, þar sem áfoim og atliafnir
verða þá samstilltari en ella rnyndi, svo hefir banda-
lagið miklu meira bolmagn til átaka en hvert einstakt
félag, og í þi’iðja lagi læra íþróttamennirnir að vinna
saman, og eftir því sem samvinnan eflist taka þeir
stæi’i’i og stæi'i’i verkefiji til meðferðar.