17. júní - 17.06.1945, Side 14
12
mikið f'é til þess að sinna verkefnum sínum, og er það
mikilsvert, þvi margt má fyrir fé gera. En mikilvæg-
ast er að þjóðin fái ást og trú á þessu verkefni. Æskan
verður að gera það að sínu máli, að klæða landið, og
hinir eldri að styðja það starf eftir megni. Það land-
varnarstarf verður strax að byrja í barnaskólunum, og
vera virkur þáttur í starfi hvers skóla. Ætti hver skóli
að hafa afmarkaðan reit cða landssvæði, og ekki nema
holt að nokkur metnaður yrði um það, hver l)ezt hirðir
sinn reit.
Sumir líta máske svo á, að slíkt starf skólanna sé
meira nafnið en gagnið. En væri landgræðslustarf skól-
anna skipulagt myndi það verða einn sterkasti þáttur-
inn i að klæða landið — og koma því tiltölulega fljótt
í framkvæmd.
Fátt hefir jafn mikilsverð uppeldisáhrif fyrir börn og
unglinga og landgræðslustörfin. Þau kynnast landinu
hæði i sjón og reynd. Þau leggja leggja fram ungu
kraftana til þess að græða sár, skapa nýtt lif og arð
og yndisþokka.
Þegar aldur færist yfir munu börnin og unglingarn-
ir vinna svo enn frekar að þessum verkefnum. Þá er
kominn samstilltur hópur, sem i ást og trú vinnur að
því að klæða landið.
Og vissulega mun honum takast það fyrr en varir, ef
trú og þekking haldast í hendur.
Þetta landgræðslustarf er eitt af stóru verkefnum
komandi ára. Það er einn liður í sj álfstæðisbaráttu
þjóðarinnar, og ekki sá sízti. Það er sameiginlegt verlc-
efni fyrir unga og gamla i svcit og við sjó.
Við sáum litlum grænum birkilaufum, melgrcsi og
öðrum nytjajurtum — og ávöxturinn fer eftir ást okkar
og trúnaði til þessa þýðingarmikla starfs, sem, ef það
heppnast vel, gefur framtíðinni nýtt land, nýja mögu-
leika, nýjan unað.