17. júní - 17.06.1945, Qupperneq 17
15
Hugsjómr gefa líf og þrótt.
Sagan sýnir, aö hugsjónir
eru meiri aflvaki en pening-
ar. Þó trúir fólkið á pening-
ana, en ekki á hugsjónirnar.
Trúir þú á hugsjón?
Er ])að nokkuð nema orðskrúð, um sig sláttur til
þess að gera sig stærri og gildari í augum annara?
Hugsjón — hugtak, óáþreifanleg og fjarlæg, er hún
gjaldgeng í því kapphlaupi og hraða, sem lífið heimtar?
Athugaðu hvað sagan segir þér og sýnir þér. Reynzl-
an er ólýgnust. Sagan segir að sérhvert tímahil verður
að eiga hugsjónir, sem ]>einast að fegrun lífsins og
bættum kjörum.
Hugsjónir ern einmitt gjaldmiðill framtíðarinnar.
Það eru hugsjónirnar, en ekki peninga,rnir, sem bera
uppi framfarirnar. Þær kveikja kyndlana, sumir lýsa
stutt, eða verða villuljós, aðrir lýsa langt í framtíð.
Þær hjálpa lífi og ljósi til vaxtar, styðja þann veika,
lyfta þeim smáa.
Þess verður oft vart í félagastarfsemi hér á landi, að
trúin á hugsjónirnar hefir slappast. Máske tala menn
sig heita meðan á fundum eða samkomum stendur, en
þegar kemur til hins daglega lífs ypta menn öxlum
yfir öllu hugsjónaskrafinu.
Hefir þetta nokkur laun í sér fólgin?
Fæstir eru trúarsterkari en svo, að þeir kjósa langt
um freniur ærslin og dansinn umhverfis gullkálfinn. Á