17. júní - 17.06.1945, Page 20

17. júní - 17.06.1945, Page 20
18 Þú vissir það, Island, oss var ekki rótt að vita þig frelsinu svift, og fólkið þér helgaði þrek sitt og þrótt og þétt var í hlekkina kippt, unz svo fór að ei varð á átökum hlé og aflsmunar kenndi þá hrátt, því enginn, þótt sterkur í illskunni sé, stenzt aldanna samtakamátt. Hve bjart er um nöfn þeirra drengja í dag, er dirfðust að heimta þinn rétt, og vöktu þinn metnað og menningarbrag og. manndóm í flokki og stétt. Nú hvíla þeir flestir í feðranna reit, en fortíð ber svip þeirra og mynd, og framtíð mun hylla þá hugdjörfu sveit, er hóf þig á frelsisins tind. Njót fagnandi heil þessa frelsunardags, vor fjallhrúður tigin og hrein! Stefn örugg með fólk þitt til farsældarhags, þá firrast þig hættur og mein! Sel engum þitt frelsi — þinn frumhurðarrétt, er féll þér nú aftur í skaut, því forgöngu-hlutverk þér fyrir er sett á framtíðar dáðríkri braut! Nú getur þú, móðir, lyft höfðinu hátt, sýnt heiminum göfgi þíns blóðs, hleypt fjallanna kyngi í kiknaðan mátt og kvatt þér með stórþjóðum hljóðs. Ef hamlar ei fátækt, né flónsku sé hleypt í forsæti’, er kúgar þinn lýð, mun flest verða íslenzku atgjörvi kleift í athöfn — á komandi tíð.

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/1909

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.