17. júní - 17.06.1945, Blaðsíða 21
19
1 störf vor þitt eðli skal ofið og rist,
allt íslenzkt mun reynast hér bezt.
Þinn andi skal ríkja í íþrótt og list,
vor ást skal við byggð þína fest, —
þá byggð, sem vorn kynmeið frá öndverðu ól
við arinn hins norræna máls,
og hug vorum lyfti’ upp í heiðríkju og sól
við hamfarir ísa og báls.
Hver sonur, hver dóttir, er svip þínum ann,
nú sverji þess dýrastan eið:
að vernda þitt frelsi, að fegra þinn rann
og frægja þinn kyngöfga meið,
að klæða þinn nakta og blóðrisa barm
í bjarkklæði iðgræn og mjúk
og draga þér blómstrandi bauga á arm
og bera af þér éljanna fjúk.
Þú geislar af fögnuði og framkvæmdahug,
sérð framundan verkefni nóg,
og synina fyllirðu djörfung og dug
og dæturnar skapfestu og ró.
Þú viðheldur ylnum hjá Yestmanna svcit,
er vex upp af kvistunum þeim,
sem eiga hér fornhelgan ættstofna reit, —
sá ylur mun toga’ ’ana heim.
Hver fornsögukj arni, hvert kyngifyllt Ijóð,
skal kalla fram metnað í sál
hvers íslendings, sannandi að fjallkonan fróð
á fegurst og djúpúðgast mál.
Hver bernskuhlý minning um fjarrænan frið,
er fyllir þinn vorlieiða geim,
er liftaug, sem bindur oss brjóstin þín við,
þótt berumst vér langt út í heim,