17. júní - 17.06.1945, Síða 23

17. júní - 17.06.1945, Síða 23
21 Minni ngardagar. Kvenréttindadagurinn er 19. júní, þann dag fengu íslenzkar konur jafnrétti við karla, að lögum. En langt er frá, að jafnréttið það sé veruleiki, þótt langt sé um liðið frá þvi lögin voru sett. Má þar eflaust að nokkru um kcnna tómlæti kvenn- anna sjálfra, og hins vegar hefðgróinni vanafestu. En margt hefir umþokast til batnandi aðstöðu og betri hags kvenkynsins. En margt er eftir — og i fremstu röð meiri um- hyggja alþjóðar fyrir mæðrunum. — Að þær fái notið hvildar og hressingar, a. m. k. endrum og eins, en þurfi ekki að vinna sýnkt og heilagt alla daga — og stundum næturnar í þokkabót, cf veikindi eða slys bera. að höndum. Stóraukin mæðrahjálp á að vera þjóðfélagsumbót, sem allir geta sameinast um, og hún þarf að koma fljótt. Kvenfólkið á að hafa forgöngu þess máls og fryggja því skjótan sigur. Það er ekki hægt að bera við leleysi til aukinnar niæðrahjálpar. Valdhafarnir velta miljónum og mil- jónatugum cftir geðþótta. Það er heldur ekki hægt að afsaka hið þessa máls með öðrum frambaérilegum ástæðum. Hið sanna er, að við Islendingar erum eftir- hátar margra annara þjóða með mæðrahjálp, en ætt- um og höfum skilyrði til að vera i fremstu röð. Vonandi verður ný löggjöf, við getum nefnt hana mæðrahjálp eða mæðratryggingu, komin til fram- kvæmda fyrir 19. júní 1946.

x

17. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/1909

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.