Stjörnur - 15.05.1947, Side 3

Stjörnur - 15.05.1947, Side 3
Paramount Lizcbcth Scott „Afsakið, en hef ég ekki séð röddina yðar nýlega?“ Ymsir hafa spurt Lizabeth Scott þessarar spurningar og fengið það svar, að það geti vel verið, því að Liz er eina kvikmyndastjarnan, sem fengið hefur rödd sína mótaða. (Sá eini í heiminum, er víst óhætt að segja.) Listamaðurinn, sem það gerði, var Ycca Salu- munich — og eitt af því bezta, sem hægt er að segja um hann, er það, að hann fór ekki eftir neinni ósýni- legri ímyndun. Allan tímann, sem hann var að hnoð- ast við leirinn, varð Liz að sitja fyrir honum — lclukku- stund feftir klukkustund. „Heyrið þér, herra Salu- munich . . .“ „Truflið mig ekki“. „En, herra Salumunich, mætti ég ekki fara heim og sitja fyrir yður í gegn um símann?" (Félagið var rétt búið að láta hana fá síma, eftir heils árs biðtíma). Að lokum var því lokið. Það var ýmist skýrt sem nokkrir hár- lokkar flögrandi í vorblæ, samansnúið knippi af mannsraddartónum, eða höfuðlaus líkami krjúpandi í bæn. Liz varð að orði: „Herra Salumunich, hvar er höfuðið á mér?“ „Ekkert höfuð“, anzaði hr. S„ eins þolinmóðlega og honum var unnt. „Þetta er tákn- rænt. En Liz hristir bara brúnlokkað höðuðið (því að auðvitað hefur hún höfuð) og fer í hrifningu að ræða um ballettdans — en hún er að læra að dansa ballett af bók. Eða fer að ræða um viðskiftamöguleik- ana í því að leika á móti Bogart í Dead Reckoning, Lancaster í Deadlock og Hodiak í Desert Fury. Ef hún er vel upplögð, gæti hún sagt frá því, hversu hræðilega illa henni leið í fyrsta skipti sem Louella Parsons átti viðtal við hana. (Hægan, Louella, bíddu þangað til þetta er búið.) Það var sem sé fyrsta við- talið við hana og það var fullmikið af svo góðu fyrir 22ja ára gamla stúlku að byrja með því að vera spurð . Framhald á bls. 15. STJÖRNUR 3

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.