Stjörnur - 15.05.1947, Síða 19

Stjörnur - 15.05.1947, Síða 19
FYRIRSPURNUM SVARAÐ: Úr póstkassanum Á PRJÓNUNUM! Hjá Metro-Goldwyn-Maj'er er á döfinni ný mynd; MANG- ARARNIR, með Clark Gable, Adolphe Menjou í aðalhlut- \erkum, og Jack Conway sem leikstjóra. Þetta sama „tríó“ hefir áður unnið saman og síðast í myndinni AUÐVELD- ASTA LEIÐIN, sem gerð var árið 1930. Margt hefir breyzt í kvikmyndaheiminum síðan. T. d. má geta þess, að í AUÐVELDASTA LEIÐIN var Menjou í aðalhlutverkinu, en Clark Gable lék smáhlutverk og var nafn hans ekki einu sinni nefnt í leikaraskránni. Önnur Metro-Goldwyn mynd, „Upphafið eða endirinn", mun bráðlega koma á markaðinn. Þetta er saga atom- sprengjunnar, segir frá því, hvernig hún varð til á tímum styrjaldar, og gefur glögga hugmynd um gildi hennar og mátt, svo til uppbyggingar sem og til niðurrifs. Tveir kunnir leikarar koma þarna fram meðal annara, þ. e. Bob Walker og Tom Drake, en aðal-„persónan“ er atomsprengj- an sjálf. GRASSLÉTTAN; Katharine Hepburn og Spencer Tracy, ásamt Melvyn Douglas, Robert Walker, Phyllis Thaxter o. fl. Myndin er gerð eftir skáldsögu Conrad Richter, og fjallar um líf bændanna á vesturströnd Bandaríkjanna og ýmsa erfiðleika þeirra og baráttu við utanaðkomandi ágengni. (Metro-Goldwyn-Mayer). EGGJAR RAKHNÍFSINS. í þessari áhrifamiklu mynd, sem gerð er eftir samnefndri sögu Somerset Maugham, leik- ur Tyrone Power gamlan hermann úr fyrri heimsstyrjöldinni, hermann, sem afneitar heimi efnishyggjunnar, segir skilið við unnustu sína (Gene Tierney) og venjulegt líf, til þess að geta helgað hugðarefnum sínum alla starfskrafta sína. Auk þeirra leikara, sem nú voru nefndir, leika í myndinni John Payne, Anne Baxter, Clifton Webb, Herbert Marshall o ,fl. (20th Century-Fox). í STUTTU MÁLI Bonita Granville hefir gifzt Jack Wrather, Jr., auðúgum olíusala og kvikmyndaframleiðanda frá Texas . . . Sabu hefir valið sér brúði. Sú er leikkona frá Brazilíu og heitir Bibi Ferreira . . . Dick Haymes-hjónin eiga von á þriðja barni sínu . . . Evie Wynn og Van Johnson eru nú gift . . . Sue Carol og Alan Ladd hafa eignazt dreng . . . Mickey Rooney og frú hafa eignazt annan son . . . Hinn 6 mánaða langi skilnaður Lindu Darnell og Peverell Marley endaði með fullum sáttum og nýjum hveitibrauðsdögum . . . Ann Miller hefir skilið við milljónamæringinn Reese Milner. Fáfróðar! Diana Lynn er fædd í Los Angeles, Californiu 7. október 1926. Dennis Morgan, fæddur í Prentice, Wisconsinfylki, 20. desember 1910. Guy Madison, fæddur 19. janúar 1922 í Baskerville, Californiu. Kobbi! Aritun bréfa til Jane Ball má vera, Twentieth Century-Fox Studios, Beverley Hills, California. 2 spurular! Joan Leslie er fædd í Detroit, Mich. 22. febrúar 1925 . . . Gail Russell, fædd árið 1924 í Chicago, Illionis . . . Lana Turner, fædd í Wallace, Idaho, 8. febrúar 1923 . . . James Brown, fæddur 22. marz 1920 í Desdoma, Texas . . . Enn- fremur getum við glatt „2 spurular" með því, að mynd af Roy Rogers mun birt í næsta blaði. Ein mjög söngelsbj. Beztu þakkir fyrir bréfið. Aður en langt líður vonum við að geta birt fyrir þig mynd af Susanna Foster og ekki er vonlaust um, að við getum sagt þér eitthvað um hana líka. Hvað sönglagatextana snertir þá hefir okkur því miður ekki tekizt að afla þeirra, en takist það, munum við hugsa til þín. Dísa. og Sigga! Kærar þakkir fyrir hlý orð í garð blaðsins. Jú, eins og hér að ofan er getið, megið þið eiga von á einhverju um Susanna Foster innan skamms. Arnfjörð! Tilmæli þín um bréfaviðskipti hafa verið athuguð. Okkur er ekki fyllilega ljóst, hvernig þú hugsar þetta, hvort þú átt við beiðnir um bréfasamband, eða annað. Væri um það að ræða, er sjálfsagt að taka slíkar beiðnir og koma þeim áleiðis. Gott væri að heyra frá þér bráðlega þessu viðvíkjandi. Sigga og Anna! Þið eruð ekki sammála um Alan Ladd. Að svo miklu leyti sem okkur er kunnugt á Alan bæði dreng og stúlku. Stúlkan fæddist í apríl 1943 og heitir Alana. Drengurinn er hins vegar nýlega fæddur, eins og þið sjáið á öðrum stað hér í blaðinu. Kona Alans heitir Sue Carol. Annars mun verða sagt nánar frá Alan Ladd bráðlega. Leikaradella! (Ljótt orð það!) Betty Grable hefir blá augu . . . June Haver er ekki gift, að því er við bezt vitum . . . Um það, hver syngi betur, Susanna Foster eða Deanna Durbin, treystum við okkur ekki til að dæma. Hvað finnst þér sjálfri? Það hlýtur að skipta þig mestu máli. — Þökkum árnaðaróskirnar. Guðný á HásavíbJ. Utanáskrift til Betty Grable er Twentieth Century-Fox Studios, Beverly Hills, California . . . Hinum spurningum þínum getum við, því miður, ekki svarað að sinni. Böggy! Við höfum ekki heyrt þess getið, að Joan Fontaine sé gift, né að hún eigi börn. STJÖRNUR 19

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.