Páskasól - 01.04.1944, Page 3

Páskasól - 01.04.1944, Page 3
£)ann er upprtsinn! „En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þœr til grafarinnar með ilmjurtirnar, er þœr höfðu út búið. Og þær fundu steininn veltan frá gröfinni. Og er þœr gengu inn, fundu þœr ekki líkama Drottins Jesú. Og er þær skildu ekkert i þessu, stóðu allt í einu tveir menn hjá þeim i skínandi klœðum. Og er þœr. urðu mjög hrœddar og hneigðu höfuð sín til jarðar, sögðu þeir við þœr: Hví leitið þér hins lifanda meðal hinna dauðu? Hann er ekki hér, en hann er upprisinn; minnizt þess, hvernig hann talaði við yður meðan hann enn var i Galíleu og sagði, að manns- sonurinn œtti að verða framseldur í hendur syndugra manna og verða krossfestur og upprísa á þriðja degi. Og þœr minntust orða hans og sneru aftur frá gröfinni og kunngjörðu allt þetta þeim ellefu cg öllum hinum.“ (Lúk. 24, 1—9). Heyr gleðiboðskap pann, sem æðstur er, sem oss er fluttur lífs í mestu nauðum. Sjá, engill Guðs þann helga boðskap ber: „Vor bróðir, Kristur, risinn er frá dauðum.“ „Hann er upprisinn. Hann er ekki hér.“ Á helgum páskum syngur englahjörðin. Á sjálfum dauða sigur fenginn er, og sigri lífsins fagnar gjörvöll jörðin. Hann er uprisinn. Hann er einnig hér. Sú helga vissa er páskagleðin sanna. í dauðans myrkrum dásemd lífsins er, pví Drottinn sjálfur vitjar allra manna. Þú Drottinn Jesús, dauðans sigrarinn, pín dásamlegust páskaundur gjörðu. í huga vorn og lijörtu kom pú inn. Þín heilög nálœgð fylli alla jörðu. Eftir séra Magnús Guðmundsson.

x

Páskasól

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.