Páskasól - 01.04.1944, Blaðsíða 6

Páskasól - 01.04.1944, Blaðsíða 6
4 PÁSKASÓL • • .......................................................................................... : :• * •: ---------------------------------------------------------------- .***.***•• Séra Sigurbjörn A. Gíslason: páshavíka. hjá Þegar ég var að kynna mér ýmsa kirkju- lega starfsemi í Danmörku árin 1900 og 1901, hitti ég meðal annarra starfsmann frá Bræðrasöfnuðinum í Kristjánsfeld í Suður-Jótlandi. Hann hét Jóhansen, var roskinn maður, mjög aðlaðandi og var að safna fé í Danmörku til kristniboðsins mikla, sem Bræðrasöfnuðurinn rekur víða í ókristnum löndum. Ég hafði lesið margt gott í kirkjusögunni um störf þessarar, líklega bæði fámenn- ustu og starfsömustu kirkjudeildar kristn- innar. Meðal annars vissi ég, að félags- menn hennar eru oftast kallaöir Herrnhút- ar á Þýzkalandi, og kenndir þá við þorpið Herrnhút, sem þeir reistu á Saxlandi í greifadæmi Zinsendorfs, laust eftir 1720. — Þar er miðstöð þeirra enn í dag. •— Hins vegar eru þeir nefndir Morívíanar í Eng- landi og Ameríku, af því að frá Mórivíu eða Máhren í Tékkóslóvakíu komu flótta- mennirnir flestir, er settust að í Herrnhút. Þegar Jóhansen heyrði, að mér lék hug- ur á, að kynnast Bræðrasöfnuðinum, bauð hann mér að heimsækja sig til Kristjáns- feld. Þangað fór ég svo á mánudaginn í páska- vikunni, árið 1901. Kom þaðan frá lýðhá- skólanum í Askov, þar sem ég hafði dvalið í þú mér. Og hann rekur engan burt, sem til hans kemur. En sæll er sá sem gengur leið- ina alla með Kristi. „Ég kýs mér Krist að frelsara í lífi og dauða. Ég trúi á hinn upprisna.“ Er það ekki játning okkar? Bræðrasöfnuðí 3 vikur. Ludvig Schröder, skólastjóri, hafði orð á því við mig, að sér þætti ég leita ær- ið ólíkra staða, að fara frá Askov til „þýzk- lundaðra pietista“ í Kristjánsfeld. En ég sagði sem var, að það væri einmitt tilgang- ur ferða minna, að kynnast öllu kristin- dómsstarfi, sem ég næði til. Auk þess þótti mér nokkurs vert að geta dvalið nokkra daga í Þýzkalandi. Frá Askov hafði ég að vísu farið í göngu- för með 2 kennurum og 3 námsmönnum suður yfir landamæri Danmerkur, ■— og þótti nýstárlegt að geta „farið fótgangandi í annað land.“ — Klukkan var að verða 7 á mánudags- kvöldið, er ég kom til Kristjánsfeld með „dagvagni“ frá Kolding. Jóhansen beið mín þar sem vagninn nam staðar á torg- inu, tók ferðatöskur mínar í snatri og fékk syni sínum. En bað mig að hraða mér, „lík- lega yrðum við að hlaupa til að ná til kirkju.“ Mér kom þetta á óvart, og spurði hvort nokkru skipti, þótt byrjað væri, þeg- ar við kæmum. — „Þá komumst við ekki inn,“ svaraði hann. „Um leið og messan byrjar kl. 7 er kirkjunni lokað.“ Það var fyrsta nýjungin, en ekki sú síð- asta, er mætti mér í Kristjánsfeld. Við náðum messunni, eða samkomunni. Var þar margt með öðru sniði en ég hafði séð áður. Kirkjan var að utan og innan lík stórum samkomusal. Voru þar sæti fyrir um 500 manns, en auk þess mikið gólfrými sætalaust. Ekkert var þar altari né ræðu- stóll. Stór pallur, nokkuð hár, var við miðj- an vegg, ætlaður presti eða öðrum ræðu-

x

Páskasól

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.