Páskasól - 01.04.1944, Blaðsíða 10

Páskasól - 01.04.1944, Blaðsíða 10
8 PÁSKASÓL glaður í Drottni , því „hann upprennur einlægum sem ljós í myrkrinu.“ En stöðuglyndi var Sung Deh-tsuen ekki gefið. Hann var veiklaður á sönsum. Örlög hans virtust ekki geta orðið nema á einn veg, mannlega talað. En hann hefði getað sagt, eins og Davíð: „Drottinn seildist nið- ur af hæðum, greip mig, dró mig upp úr hinum miklu vötnum." Hann mun líka hafa fundið það, hver þörf honum var á því að lifa í nánu samfélagi við Drottin. Og þess vegna var það eðlilegt, að hann vitnaði um Drottin, ekki aðeins á sam- komum heldur öllum stundum og fyrir öll- um. Þess sá þá líka árangur. Afi hans snér- ist til kristinnar trúar, fyrstur á eftir sjálfum honum, og síðan hver á fætur öðr- um af nánustu ættingjum hans. Þegar ég tók við eftirliti starfsins í Teng- chow, hafði Sung Deh-tsuen verið sam- verkamaður kristniboðanna þar í yfir 20 ár. En hann var þá fluttur þaðan og var eftir það í nokkur ár útstöðva trúboði. Hann eltist snemma og hrakaði honum þá jafnframt í andlegum efnum. Árin 1925— 1926 voru erfiðir tímar í Kína, ekki sízt fyrir kristniboðið. Þá reynslu þoldi Sung Deh-tsuen illa. Hann fór að gefa sig að lækningum og smábraski og ýmsu öðru en kristniboði. Það fór svo að honum var sagt upp starfi í þjónustu þess. Honum gekk þá erfiðlega að hafa hemil á skapi sínu, og bitnaði það þá á hans fyrri vinum og samverkamönnum. Upp frá þessu fór hann að ferðast um, selja smámuni og lækna sjúka. Hann fékk hjá okkur kristileg smárit, sem hann út- býtti. Okkur þótti afar vænt um það, því oft fór hann til afskekktra staða. En alltaf kom hann heim aftur til Teng- chow, og aldrei svo að hann ekki liti inn til okkar á kristniboðsstöðinni. Við vikum þá venjulega einhverju að honum. Það var heldur ekki laust við að finna mætti á honum, að hann ætlaðist til þess. Einu sinni kvaddi hann þó svo að þess varð ekki vart, — kvaddi mjög hjartan- lega, þakkaði fyrir hve vel við hefðum æf- inlega reynzt honum. Nú var honum einsk- is vant. Og nú var hann að leggja af stað í langferð. Þakkaði hann okkur að síðustu mjög vel fyrir að við vildum líta öðru hvoru inn til konunnar hans. Við gerðum það næsta dag og skildum þá hvers kyns var. Sung hafði ráð á því að afsala sér ofurlitlum ferðastyrk frá okkur, gegn því að við litum eftir konunni hans. En hún lá dauðvona í tæringu. Á heimilinu fannst ekki matbjörg, en í pen- ingum aðeins 500 cash, eða sem svaraði fáeinum aurum. Hann arfleiddi okkur að þessu heimili. Um það var ekki að fást, úr því að hann var farinn. Kona í næsta húsi lofaði að líta til sjúklingsins. Við sá- um henni fyrir því litla, sem hún þurfti til matar. — En það síðasta, sem við urðum að sjá um fyrir hana, var líkkista og loks kristilega jarðarför. Það var mikil breyting orðin á Sung Deh-tsuen, þegar hann kom næst í heim- sókn til okkar. Það var haustið 1933. í trúarvakningunni miklu, sem brauzt út árinu áður, hafði hann endurnýjazt. Op. 2, 5. var ein þeirra ritningarstaða, sem oftast var vitnað í á vakningasamkom- unum: „En það hefi ég á móti þér, að þú hefir fyrirlátið þinn fyrri kærleika. Minnst þú því, úr hvaða hæð þú hefir hrapað, og gjör iðrun og gjör hin fyrri verkin.“ Þetta orð hafði Drottinn stílað beinlinis til hans. Það var Sung sannfærður um. Og hann gjörði iðrun og eignaðist sinn fyrri kærleika til Drottins og til hans trúuðu og til málefnisins, kristniboðsins. Og nú

x

Páskasól

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.