Páskasól - 01.04.1944, Page 15

Páskasól - 01.04.1944, Page 15
PÁSKASÓL 13 Valgerður stundi þungan, þegar hún minntist Axels. Hann, sem hafði verið svo elskulegur og góður piltur á bernsku- og æskuárum sínum, brást foreldrum sínum alveg Um tvítugsaldur kynntist hann nýj- um félögum, sem tóku að sér að „manna hann upp.“ Þeir hófu starf sitt með því að ræna hann trú sinni, og komu honum í skilning um, að trúin væri gamaldags rugl. Svo kenndu þeir honum að neyta á- fengis og loks iðjuleysi, þá var takmarkinu náð. Hann hæddi og svívirti allt kirkju- legt starf, hverju nafni sem nefnist, út- húðaði þeim, sem eitthvað áttu, og þeim sem unnu störf sín með skyldurækni og trúmennsku. Árið eftir að faðir hans dó, hvarf hann henni sjónum. Hann fór í siglingar, og síðan hefir hún ekkert af honum frétt. Sögusagnir hermdu einu sinni, að hann hefði farizt með skipi við Ameríkustrendur. Hún vonaði bara ,að ef það væri satt, þá hefði hann fengið tækifæri til þess að skoða hug sinn, áður en hann lét lífið. Valgerður vaknaði snemma á páskadags- morguninn og klæddi sig. Hún fór rakleitt fram að útidyrahurðinni og opnaði hana, en hún varð satt að segja fyrir vonbrigð- um, því að hún hafði eiginlega búizt við að finna einhvern pakka þar. Hún gekk út á stéttina, því veðrið var dásamlega fagurt, það var ekki skýhnoðri á lofti, — heilög kyrrð ríkti yfir öllu, og það var eins og þessi friður fyllti hjarta hennar. Hún fór inn í skyndi og sótti sér kápu, því að hún var ákveðin í því að skreppa upp í kirkjugarð og koma að leiði manns- ins síns og barnanna tveggja. Hún mætti engum á leiðinni, því að þetta var svo snemma morguns. Hún átti engar páska- liljur til þess að leggja á leiðin, en nokkur tár hrundu niður og vökvuðu nýgróður- inn, sem var að byrja að vakna til nýs lífs eftir vetrarsvefninn. Svo settist hún niður til að hvíla sig.-------- — Flestir gestirnir á gistihúsinu voru vaknaðir klukkan um átta á páskadags- morguninn. Hljómsveit, sem hafði fariö þar framhj á og spilaði um leið páskasálma, hafði vakið þá. í einu herberginu voru hjón með tvö börn sín, þriggja ára dreng og stúlku tveggja ára. Þau höfðu öll komiö til bæjarins kvöldið áður með einu milli- landaskipinu. Þegar þau sáu, hve veðrið var gott, klæddu þau sig í snatri, fengu sér morgun- verð og fóru svo út. „Nú skulum við reyna að finna móður þína, Axel,“ sagði konan við. mann sinn. „Við skulum skoða okkur svolítið um fyrst, því að fólkið er ekki komið á fætur ennþá, og ég veit ekki, hvar hún býr,“ svar- aði maðurinn. „Við ættum annars að fara upp í kirkjugarð og koma að leiði föður míns,“ bætti hann við. Það breytist margt á fimm árum og kirkjugarðurinn líka. Axel gat ómögulega munað hvar leiðið var, enda hafði hann ekki oft komið þangað. Þau leituðu góða stund. „Þarna situr gömul kona, við skulum vita hvort hún getur ekki leiðbeint okkur,“ sagði kona hans. Þau gengu nær, en kon- an virtist ekki verða þeirra vör, því að hún sat grafkyrr með hendurnar byrgðar fyrir andlitið. Það var líkast því að hún svæfi. Allt í einu kipptist Axel við og greip í handlegg konu sinnar. „Ég held, að þetta sé móðir mín,“ stam- aði hann. Hann starði á gömlu konuna. Jú, það var ekki nokkur vafi á því, að það var hún. „Er þetta hún amma mín?“ spurði litli drengurinn. „Já,“ svaraði faðir hans, „farðu til hennar." t'

x

Páskasól

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Páskasól
https://timarit.is/publication/1914

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.