Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 6

Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 6
Núverandi útskriftarárgangur Umhverfis- og byggingarverkfræði Námsferð 3 árs nema vorið 1997 Laugardagurinn 17. maí. Loksins var komið að því. Leifsstöð var náð og bjór farinn að renna. Flogið til Baltimore hvar gista átti eina nótt til að ná burt flug- þreytunni áður en flogið yrði til San Francisco. Eftir kvöldmat prófuðu nokkrir diskótek á hótelinu en aðrir gengu til náða. Sunnudagurinn 18. maí. Vaknað fyrir allar aldir og flogið til SF. Um kaffileytið, eftir nokkurra tíma þjark við bílaleigukerlingarnar, gátum við komið okkur fyrir á Fíotel Richelieu og að því loknu fóru sumir út á lífið. Mánudagurinn 19. maí. Ræs klukkan sjö að staðartíma (14.00 að íslenskum). Ferðinni var heitið í jarð- skjálftarannsóknarstofu Berkeley (Earth- quake engineering research center). Við komuna tók á móti okkur Mr. Don Clyde. Þarna var sýnt hristiborð sem notað er til að líkja eftir jarðskjálfta og áhrif hans á hinar ýmsu tegundir mannvirkja mæld. Einnig fékkst að líta á stöpla sem höfðu verið prófaðir með svokölluðu einásaprófi þar sem álagið var allt að 200.000 tonn (örlítið meira en í jarðtækni hjá Sigurði Erlingssyni). Þessi heimsókn tók ekki nema klukkutíma þannig það þurfti að drepa tímann í þrjá klukkutíma þangað til farið væri í heimsókn til Golden Gate fyrirtækisins. Því var kampusinn hjá Berkeley heimsóttur, en hann er í næsta nágrenni við tilraunastofuna og löbbuðum þar um í smátíma. Að því loknu var staldrað við í verslunarmiðstöð sem er nærri Golden Gate brúnni. Þar fór liðið hamförum í bjórkælum súpermarkaðsins og nærði sig. Klukkan tvö var haldið í heimsókn til Golden Gate Bridge District. Þar voru mót- tökur mjög góðar, haldinn frábær fyrirlestur um það hvernig stæði til að styrkja brúna gegn jarðskjálftum og sýnd mynd um byggingu brúarinnar. Eftir innblástur heimsóknarinnar gekk hópurinn rúmlega hálfa leið yfir brúna og hún skoðuð í krók og kima auk þess sem Kodak var vel styrktur. Þriðjudagurinn 20. maí. I dag var ferðinni heitið á tvo staði. Fyrst var hinn mjög svo óhefðbundni háskóli Kaos Piloten heimsóttur. Um er að ræða danskan háskóla þar sem mjög óhefðbundið framhaldsnám í viðskiptafræðum fer fram. I Kaos Pilot kynntu nokkrir nemendur starfsemi skólans. Næst á döfinni var Dames and Moore, sem er eitt stærsta verkfræðifyrirtæki Bandaríkjanna. Starfsemi fyrirtækisins var kynnt og spurningum svarað. Seinni partinn skoðuðu sumir sig um í Kínahverfinu í San Fransisco og keyptu ýmsan varning. Eftir kvöldmat í einni stærstu verslunarmiðstöð borgarinnar fóru næturgeltir hópsins og þefuðu af næturlífi borgarinnar. Aðrir sátu heima. Miðvikudagurinn 21. maí. Leiðin lá til Sacramento þar sem heimsækja átti CalTrans, en það fyrirtæki sér um alla hönnun og rannsóknir í vegagerð Kaliforniubúa. Eftir rúmlega klukkutíma akstur var tekið á móti okkur í Sacramento og hópurinn lóðsaður um hluta stofnunarinnar fram að hádegi. Eftir matarhlé var kynningunni haldið áfram. Agæt kona kynnti það sem fyrir augu bar innan fyrirtækisins í rúma tvo tíma og þá var komið að fróðlegum fyrirlestri um sveiflugreiningu burðarvirkja sem stóð í u.þ.b. fjórar klukkustundir. Að þeim tíma loknum var fólk vakið og starfsmenn leystir út með gjöfum. Eftir kvöldmat á sannkölluðum Western-veitingastað var leitað logandi ljósi að vængjahurðum í bænum. Fimmtudagurinn 22. maí. Dagurinn hófst á móteli í Sacramento allsnemma morguns. Ferðinni var heitið í University of California at Davis, nánar tiltekið í jarðtæknirannsóknarstofuna. Þar var skoðaður centrifuge en það er tæki sem í bernsku sinni var notað til þjálfunar fyrstu geimfara Bandaríkjamanna en nú til að líkja eftir jarðsjálfta í jarðlögum. Heimsókninni lauk um hádegið og þá voru hendur frjálsar það sem eftir var dagsins. A leiðinni aftur til San Francisco var staldrað við í verslunar- miðstöð þar sem sumir létu greipar sópa svo um munaði. Föstudagurinn 23. maí. Arla dags var lagt af stað til Stanford Uni- versity en þar var ætlunin að eyða deginum. Þessi dagur var fyrsti rigningardagurinn í langan tíma í Kaliforníu. Eftir að hafa ekið í um hálftíma tók við löng bið í röðum sem höfðu myndast vegna nokkurra umferðar- slysa á hraðbrautunum. Svo sjaldan rignir á þessu svæði að menn kunna illa að bregðast við þeim aðstæðum, annað en víkingar frá Islandi. Vegna veðurs varð hálftíma töf á komu á áfangastað frá áður auglýstri dagskrá. I Stanford tók á móti okkur Hjörtur Þráinsson sem leiddi samlanda sína um bróðurpart dagsins og kynnti aðstæður. Heimsókninni lauk um kaffileytið og enn lá leið til San Francisco. Þegar þangað var komið fóru nokkrir úr hópnum og kíktu á hippahverfið í borginni en það er á horni Haight og Ashbury. Um kvöldið hittist 6 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.