Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 18

Upp í vindinn - 01.05.1998, Blaðsíða 18
Snertill AutoCAD Map™ AutoCAD MAP útgáfa 2 er nýjasta útgáfa frá Autoclesk af sjálfvirku korta og LUK verkfæri fyrir verkfræðinga, skiplagsfólk, stjórnendur og aðra sérfræðinga sem búa til og viðhalda kortum og nota gögnin sín til greiningar og skipulagningar. AutoCAD Map byggir á útgáfu 14 af hinu vinsæla teiknikerfi AutoCAD og býður rauntölu nákvæmni og fjölda aðgerða til kortagerðar og viðhalds gagna í þekktu AutoCAD umhverfi. Til viðbótar við LUK- aðgerðir eins og myndun grannfræði (topology) og greiningar, þemakort og mikla útprentunarmöguleika býður Map upp á mikla hraðaaukningu við gagnavinnslu, samhæfðan rastastuðning og viðbætur í skráarsamskiptum. AutoCAD Map styður fjölda annara skráarforma eins og ESRI ARC/INFO(r) þekjur, ESRI ArcVIEW(r) SHP, Maplnfo(r) MIF/MID, Microstation(r) DGN sem og Autodesk MapGuide SDF og DXF. Stuðningur er við fimmtán rastaform. ■ AutoCAD MAP: Hefur fullkomin AutoCAD verkfæri í umhverfi sem þróað er fyrir og af sérfræðingum í kortagerð. Gerir kleift að vinna með mikið magn gagna sem samanstanda af mörgum kortum. Leyfir samhæfingu á fjölda af tegundum og formum gagna. Býður þróaða LUK virkni og möguleika á rúmfræðilegum (“spatial”) greiningum. Auðveld samskipti milli korta og landfræðilegra gagna. AutoCAD Map útgáfa 2 byggir á AutoCAD Rl4. Mikil hraðaaukning og hagkvæmni gera þér kleift að að vera enn afkastameiri en áður. ■ Aukin hagræðing í kortagerð Hágæðakort búin til og viðhaldin hratt og örugglega AutoCAD Map hraðar allri kortagerð á tvo vegu. I fyrsta lagi er skráarvinnsla og fyrirspurnir hraðari svo minni tími fer í bið. I öðru lagi eykur sjálfvirk kortagerð og breytiaðgerðir nákvæmni og framleiðni. AutoCAD Map hagræðir kortagerðaferlinu með því að því að tengja eigindir um leið og hnitun eða innsláttur gagna fer fram. Auk þess auðveldar það undirbúning að því að gögn verða að korti með aðgerðum sem eyða tvöföldum einingum, laga undir- og yfirskot eininga o.fl. Með AutoCAD Map er möguleiki að flytja inn í kortagögn frá öðrum kerfum eins og ARC/INFO þekjur og Microstation dgn-skrár. Allur sá gríðarlegi fjöldi korta sem nú þegar eru á AutoCAD DWG skráarforminu verður auðvitað eins og heima hjá sér. ■ Samræming gagna Unnið með mörg kort og gögnum bætt við kort frá mismunandi aðilum. Work Session eiginleikinn er hentugur þegar unnið er með mikið gagnamagn sem samanstendur af mörgum kortum. I staðinn fyrir að opna hvert kort og gera sérstaka fyrirspurn eða gera breytingar á hvert þeirra er nú hægt að vinna samæmt yfir samliggjandi kort. Til dæmis er hægt að breyta vegi á einu svæði sem nær yfir fleiri kort í stað þess að breyta hverju kort fyrir sig. Með AutoCAD Map er hægt að tengja upplýsingar við einingar með því að hengja þær beint á einingarnar eða með tengingu við ytri gagnagrunn. Með þessum tengingum er hægt að velja ákveðnar einingar til að fá upplýsingar eins og uppruna, tegund eða hvað sem á þær eru settar. Einnig er hægt að gera fyrirspurn í upplýsingarnar til að fá fram t.d. öll hús sem byggð eru á ákveðnu tímabili. ■ Greiningar LUK virkni bætt í kortavinnslu til að gera vinnuna aðgengilegri. Hægt er að framkvæma einfaldar landfræðilegar greiningar á gögn sem unnin eru í MAP. Með yfirlagnagreiningu (“polygon overlay analyses”) er hægt að sýna þau svæði eða einingar sem falla innan ákveðinnar skilgreiningar. Netgreining (“network tracing”) ákveður stystu fjarlægð á milli tveggja staða. Vinnan eru ekki fullkomnuð fyrr en henni er deilt með öðrum. Hægt er á einfaldan hátt að búa til þemakort með fylltum flötum. Einnig má gæða kortið lífi með því að setja loftmynd undir gögnin. Þegar allt er búið er hægt að varpa gögnunum í mörg önnur algeng skráarform. Einnig er auðvelt að birta niðurstöðuna á Internetinu eða intraneti. Fáðu þér lausnina í kortagerð sem þig hefur vantað til að færa upplýsingar niður á jörðina - AutoCAD Map. www.snerlill.is SNERTil HliAasmári 14 200 Kopavogur s: 554 0570 - ♦: 554 0571 20 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.