Upp í vindinn - 01.05.1998, Qupperneq 14
Sultartangavirkjun og íslensk orkumál
Mynd 6. Umhverfisvænn ráðherra- eða borgarstjórabítl frá Audi. Flestir íslensku ráðherrarnir aka
nú á Audi bílum með bensínvél, sem er ekki umhverfisvænt. Hér er Audi duo, sem er samboðinn
hvaða stórmenni sem er. Hann tíður áfram hljóðlaus og ómengandi í þéttbýlinu við orku frá
rafgeymum, en ef fara þarf í tengri ferð en 100 km. þá er skipt yfir á sparneytna díselvél, án
þess að hægja á ferðinni. Er þetta ekki eitthvað fyrir umhverfis- og iðnaðarráðherra okkar?
Ljósm. Birgir jónsson
Þá þarf að vanda vel staðarval fyrir há-
spennulínur og meta áhrifin áður en
gengið er til verks.
Hækkun grunnvatnsborðs vegna
miðlunarlóna á gróðurlausum svæðum
getur skapað góð skilyrði fyrir gróður
og þar með dýralíf. Aurburður jökul-
ánna botnfellur að miklu leyti í
miðlunarlónin. Árnar neðan lónanna
verða því gegnsærri og botnskrið
minnkar. Hvort tveggja er jákvætt
fyrir lífsskilyrði í viðkomandi vatns-
falli.
7. Orkumál íslands og gróður-
húsaáhrif
Islendingar eru svo heppnir að eiga
gnótt af umhverfisvænni og sjálfbærri
orku, þ.e. vatnsorku og jarðhita. Kveða
þarf skýrt á um í lögum að þessi meng-
unarlausa orkuauðlind sé eign þjóð-
arinnar og greiða þurfi fyrir nýtingu
hennar. Auðlindagjald þetta ætti að
renna í ríkissjóð og verja ætti hluta
þess til umhverfismála. Virkjunaraðili
ætti einnig að greiða nokkra upphæð
til viðkomandi héraðs eða kjördæmis
sem virkjunin stendur í, og færi það
gjald til atvinnu-, samgöngu- og
menntamála héraðsins. Nú hefur aðeins
eitt sveitarfélag tekjur af hverri virkj-
un, þ.e. það sveitarfélag sem stöðvarhús
virkjarinnar stendur í.
Mikið hefur verið rætt um Ríó-sátt-
málann, aðallega um kafla 9 í “Dagskrá
21”, sem fjallar m.a. um losun gróður-
húsalofttegunda út í andrúmsloftið.
Erlendis er þetta langmesta áhyggju-
efni umhverfisþenkjandi fólks. Þrátt
fyrir okkar mengunarlausu orku er nær
þriðjungur af orkunotkun okkar
brennsla jarðefnaeldsneytis, að mestu
olíu, sem brennt er í bifreiðum, skip-
um og flugvélum. Þetta er yfir 60% af
losun gróðurhúsalofttegunda hér á
landi.
Besta leiðin til að minnka losun á
þessum efnum er því að breyta reglum
um aðflutningsgjöld mengunarlausra
bíla t.d. rafbíla, þannig að þeir verði
vænlegri kostur en bensínbílar. Nú
þegar eru framleiddar margar tegundir
bíla sem hægt er að knýja með raf-
magni í borgarakstri en dísilvél í lang-
keyrslu utan þéttbýlis, sjá mynd 6.
Aðeins lengra fram í framtíðinni
kemur svo notkun á vetni í flestar
gerðir samgöngutækja, sem nýta vetn-
ið til að framleiða raforku án bruna í
svonefndum efnahverfli (fuel cell), en
þar er útblástursefnið nær eingöngu
vatnsgufa.
Ástæða þess að svo lítið er um notk-
un rafmagns og vetnis á samgöngutæki
erlendis er að jarðefnaorku þarf yfirleitt
til framleiðslu þessara vistvænu
orkugjafa, þannig að í heild minnkar
loftmengunin ekki. Hér á landi er
þessu öðruvísi varið, því við munum
framleiða rafmagnið og vetnið á okkar
samgöngutæki og fiskveiðiflota með
vistvænni, sjálfbærri orku, þ.e.
vatnsorku og jarðhita. Þarna getum við
minnkað losun okkar á gróður-
húsalofttegundum um a.m.k 40% á
næstu 20 árum.
I riti umhverfisráðuneytisins um
Ríó-ráðstefnuna frá 1992 segir orðrétt:
“I orkumálum er lögð áhersla á að ríkið
stuðli að aukinni notkun á orku frá
endurnýjanlegum og ómengandi orku-
gjöfum, svo sem vatnsorku, jarðvarma,
sólar- og vindorku, í stað kjarnorku og
jarðefnaorku. Leggja ber áherslu á að
skipuleggja orku- og iðnaðarmál
svæðisbundið með það fyrir augum að
draga úr mengun”.
Orkuver knúið jarðefnaorku losar um
10 sinnum meira af gróðurhúsaloftteg-
undum en iðjuverið, t.d. álver, sem
nýtir orkuna. Hin sjálfbæru íslensku
orkuver framleiða hins vegar engar
slíkar lofttegundir. Með því að reisa ál-
ver hér á landi í stað Þýskalands yrði
heildarlosun frá orkuveri og iðjuveri
samanlagt aðeins um 10% af því sem
það er þar. Þar sem gróðurhúsaáhrif ná
um allan heim skiptir staðsetning
mengunarvaldsins ekki höfuðmáli
varðandi loftslagsbreytingar. Það má
því segja að í þessu tilliti sé umhverfis-
vænt að reisa iðjuver þar sem þau nýta
sjálfbæra orku.
I umhverfismálaumræðu hér á landi
er Landsvirkjun oft mikið gagnrýnd,
þó að það fyrirtæki framleiði og mark-
aðssetji aðeins hreina og sjálfbæra orku
eins og hvatt er í Ríó-sáttmálanum.
Enginn hér á landi gagnrýnir olíu-
félögin sem selja þó eingöngu meng-
andi orku er veldur yfir 60% af losun
gróðurhúsalofttegunda hérlendis.
Olíufélögin auglýsa mikið að þau verji
peningum til skógræktar og
landgræðslu en Landsvirkjun hefur þó
varið margfalt meira fé til þessara þátta
en olíufélögin.
Ef minnka á losun gróðurhúsaloft-
tegunda í Vestur Evrópu, þá myndi sæ-
strengur sem flytti 600 MW rafmagns
frá Islandi til Evrópu draga samsvar-
andi úr brennslu jarðefnaeldsneytis þar,
sem næmi álíka miklu og öll losun
íslendinga nú á gróðurhúsalofttegund-
um út í andrúmsloftið. Væri hægt að
14
...upp í vindinn