Upp í vindinn - 01.05.1998, Qupperneq 38

Upp í vindinn - 01.05.1998, Qupperneq 38
Gluggar og garðhús ehf. Það sem koma skal í gluggum og hurðum Gluggar og garðhús ehf. buðu okkur nemendum í Umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla íslands í heimsókn nú í vetur og þökkum við fyrir góðar móttökur. Fyrirtækið er íslenskt og hefur frá stofnun þess árið 1985 sérhæft sig í framleiðslu glugga, hurða og milliveggja úr uPVC plastefni. En þó einkanlega í sólstofum og svalahýsum. Kostir uPVC plastefnisins í glugga og hurðir eru ótvíræðir þegar eiginleikar þess eru hafðir í huga. Hér er átt við hvernig plastefnið svarar hinu mikla áreiti íslensku veðráttunnar. I fyrsta lagi gulnar plastefnið ekki né brotnar upp í sólarljósi. í annan stað hefur raki engin áhrif á plastefnið þ.e. það bólgnar ekki eða verpist í slagviðri og bleytu eins og trégluggar og hurðir gera. En eðli sínu samkvæmt þá hlýtur viður, sem hefur aðra hlið sína í 100 % raka (úti) en hina í þurru og hlýju lofti (inni), að breyta lögun sinni með tilheyrandi iekavanda- málum, sem uPVC plasthurða og gluggaeigendur þekkja ekki. Innan í glugga- og hurðarrömmum eru stáirammar sem, styrkja þá og eru stormjárn fest í þá þ.a. ekki er hætta á að þau losni. I þriðja lagi, og einn vanmetnasti kostur glugga og hurða úr uPVC efni, er hið litla viðhald sem þeir/þær þarfnast. Meðan trégluggar og hurðir þarfnast viðhalds á fárra ára fresti er slíks ekki þörf fyrir uPVC-piastefni. Hráefnið kemur frá viðurkenndum framleiðanda í Þýskalandi, en er sniðið og samsett hjá Gluggum og Garðhúsum ehf. og er því íslensk framleiðsla. í Evrópu hafa uPVC-gluggar rutt sér mjög til rúms, og t.d. í Þýskalandi eru um 65 % allra framleiddra glugga úr uPVC plastefni. Við skorum á þig að kynna þér frekar glugga og hurðir úr uPVCplastefni. □ ÁK, HH, HS, PG og SIH 14 ára reynsla hefur sýnt að sólstofur smíðaðar hjá fyrirtækinu Gluggar og Garðhús ehf, standast íslenskt veðurfar. Gerum fast verðtilboð í smíði á einingum, uppsetningu og glerjun, þegar samþykktar teikningar liggja fyrir. Aðstoðum við útfærslu á teikningum. SÍMINN HJÁ OKKUR ER 554 4300 38 ...upp í vindinn

x

Upp í vindinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Upp í vindinn
https://timarit.is/publication/1929

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.