Upp í vindinn - 01.05.2009, Síða 73
C02 búskapur íslenskra háhitakerfa
jarðhitasvæðum og fengu að það væri á bilinu
1.0 til 2.1xl09 kg á ári. Níels Óskarsson
(1996) tengdi saman niðurstöður mælinga á
vökvainnlyksum og höggunarlíkön og fékk
2.2xl09 kg á ári. Halldór Armannsson o.fl.
(2005) reiknuðu út hve mikið magn ætti að
losna úr kviku og ferðast að yfirborði á ári
hverju. Gerðu þeir ráð fýrir að gosbeltið væri
500 km langt, að þykkt jarðskorpu væri 20 km
(Ingi Þ. Bjarnason o.fl. 1993), gleikkun þess 2
cm á ári (Axel Björnsson 1985) og eðlismassi
kvikunnar 2900 kg/m3. Þannig reiknaðist
þeim að magn virkrar kviku í jarðskorpunni
væri 5.8xl0n kg á ári. Frá niðurstöðum Önnu
Maríu Ágústsdóttur og Susan Brantley (1994)
fengu þeir að afgasanlegt C02 í kviku (frá
1300 til 200°C) væri 2200 ppm. Þannig fékkst
að koldíoxíðstreymi frá kviku til yfirborðs ætti
að vera 1.3xl09 kg á ári.
Útstreymi um jarðveg og gufuaugu
Gasflæðimælir (West Systems closed Chamber
C02 flux meter með LICOR LI-820 single
path, dual wavelength infrared gas analyzer)
hefiir verið notaður til að mæla koldíoxíðflæði
á nokkrum stöðum en samfelldastar mælingar
hafa verið gerðar í Kröflu og á Reykjanesi.
Til er verulegt magn gagna um C02 styrk í
gufu guflxaugna frá flestum háhitasvæðum
landsins. Langbestu gögn um heildarrennsli
úr gufuaugum eru frá Reykjanesi, þar sem
gufu var safnað saman frá stórum blettum og
hún leidd í rör til flæðimælinga með vindmæli
(Kurz 2445 hot wire anemometer).
Frumniðurstöður mælinga á C02 flæði á
Reykjanesi og í Kröflu eru sýndar í Töflu 1. I
Kröflu var einungis unnt að mæla á tiltölulega
litlum hluta jarðhitasvæðisins þar sem hraun
þekur mestan hluta þess, en til mun stærri hluta
hins tiltölulega litla Reykjanessvæðis náðist. I
líröflu var mælt á tveimur svæðum, einu sem náði
frá Suður- til Vesturhlíða og svo í Leirhnúk.
Svæði Flatarmál (km2) C02flæði tonn/dag
Reykjanes 0.22 13.5
Krafla.Suður- 1.1 22
og Vesturhlíðar.
Krafla. Leirhnúkur 0.17
Tafla 1 NiðurstoðurC02fIæðimælingaá Reykjanesi
og í Kröflu
Ut frá þessum mælingum ásamt nokkrum
mælingum sem gerðar vom í Hveragerði og
metnu flatarmáli jarðhitasvæða var gert lauslegt
mat á hugsanlegu flæði C02 til yfirborðs um
íslensk jarðhitasvæði. Kemur það mat fram í
Toflu 2 og virðist nokkm meira en reiknað flæði
frá kviku. Flæði frá núverandi virkjunum er haft
HE -18
HE-11
HE-17
HE -03
HE-04 HE-14 KGH-01 HE-08
HE-21 HE-10 HE-16 HE-09 HE-13 HE-05
1 km
125
100
75
50
25
Mynd 2 Myndin sýnir niðurstöður mælinga (SOR á magni koltvísýrings sem bundið er í bergi íjarðhitakerfinu
á Hellisheiði. Styrkur C02 var ákvarðaður í sýnum af borsvarfi. Staðsetning einstakra sýna eru táknuð með
svörtum punktum.
Svæði Flæðibil g/m2/dag Líklegt flæðigildi g/m2/dag Flatarmál km2 Flæði 109kg/ár
Reykjanes 34-80 50 0.2 0.0036
Hveragerði 13-30 20 15 0.11
Krafla 20-188 40 ■■ 10 0.15
ísland 20-50 533 3.9-97
Virkjanir 0.16
Tafla 2 Mat á C02 heildarflæði þriggja svæða og landsins alls og C02 streymi frá virkjunum
með til samanburðar en ætla má að það hafi aukist
umtalsvert nú með nýrri virkjun á Hellisheiði og
miklum nýborunum annars staðar.
C02 í grunn- og yfirborðsvatni
Á Reykjanesi var varmastreymi frá níu
leirpyttum metið með hliðsjón af mælingum á
lofthita, vindhraða, rakastigi lofts og hitastigi
þeirra. Gert var ráð fýrir að varmastreymi frá
pyttunum væri jafnt varmastreymi inn í þá
en hið síðarnefnda ætti eingöngu uppruna
í gufu sem streymdi inn í þá. Styrkur C02 í
þeirri gufu var reiknaður út frá athugunum á
steindajafnvægi í vökva á svæðinu. Fékkst að
gufustreymi í pyttina væri 46 tonn á dag sem
jafngildir 150 kg af C02á dag. Hliðstætt mat
hefur ekki verið gert á öðrum svæðum en ekki
er ástæða til að ætla að hlutur þess sem fer út
um yfirborð á þennan hátt sé mikill á öðrum
jarðhitasvæðum þar sem grunnvatnsborð er
víða á miklu dýpi.
Athugun á bindingu C02 í bergi
Vitað er að C02 binst auðveldlega Ca+2 jón sem
losnar úr bergi þegar jarðhitavökvi leikur um
það. Myndast þá síðsteindin kalsít (CaC03)
sem einnig fellur út við suðu jarðhitavökva.
Myndun kalsíts er skilyrðum háð, t.d. er hún
óveruleg við hátt hitastig (>280°C).
Athugaðar voru niðurstöður svarfgreininga
frá Kröflu, Reykjanesi og Hellisheiði. Eins
og vænta mátti kom í ljós að yfirleitt var
lítið um kalsít neðan 1000 m dýpis. Með
hliðsjón af þeirri athugun voru valin 654
svarfsýni úr 40 borholum til magnbundinna
greininga á C02 í bergi frá þessum svæðum.
Niðurstöður, voru að heildarmagn bundins
C02 í bergi á Reykjanesi, Hellisheiði og
í Kröflu er um 650, 1650 og 2200 miljón
tonn. Miðað við að aldur Reykjaneskerfisins
sé 10.000 til 100.000 ár (Hjalti Franzson,
pers. uppl.) en Kröflukerfisins 110.000 til
290.000 ár (Kristján Sæmundsson, pers.
uppl.) fæst að á Reykjanesi séu 10 til 50% og
í Kröflu 3 til 8% af því C02 sem borist hefur
úr jarðhitakerfunum bundnir í bergi (Frauke
Wiese o.fl. 2008). Niðurstöður mælinganna á
Hellisheiði eru sýndar á mynd 2.
Magn það sem bundið er í þessum þremur
jarðhitakerfum er um 1300 sinnum meira
en það magn sem Íslendingar losa til
andrúmslofts á ári hverju. Niðurstöður
þessara athugana gefa tilefni til bjartsýni um
árangur þeirra tilrauna sem fýrirhugaðar eru
um bindingu C02 i bergi með niðurdælingu.
Niðurstöður um C02 búskap út frá
... upp í vindinn I 73