Þroskaþjálfinn - 2002, Síða 19
Starfsdagar
Unnur Fríða Halldórsdóttir
Starfsdagar á nýrri öld
Fagvitund
Nú þegar hyllir undir að núverandi fagráð
láti af störfum þá er mér það ljúft að fylgja úr
hlaði útdráttum úr fyrirlestrum sem voru
fluttir á starfsdögum ÞI í byrjun nóvember
árið 2001 og birtast hér í blaðinu.
Undirbúningur starfsdaga sem fram fór á
tímabilinu mars - nóvember 2001, var j'
höndum fagráðs og voru margir fundir á
þeim tíma. Fljótlega varð ljóst að fagvitund
yrði yfirskrift starfsdaganna. Hvers vegna? j|
Jú, verkfall stéttarinnar síðastliðið vor og
sumar hafði í för með sér mikla og þarfa um-
ræðu um fagið. Þroskaþjálfar verða að búa yfir sterkri fag-
vitund. Því var allt kapp lagt á að fá sem breiðastan hóp
þroskaþjálfa til að fjalla um efnið. Voru því bæði kallaðir til
eldri og reynslumeiri félagar og nýútskrifaðir. Sú nýjung
var viðhöfð að öllum var greidd ákveðin þóknun fyrir fyr-
irlestrana og þótti fagráði það skipta miklu máli.
Starfsdagarnir voru svo haldnir 1.-2. nóvember 2001 á
Hótel Sögu og sóttu þá 120-135 manns. Þroskaþjálfanem-
ar á 1. ári áttu kost á að hlýða á fyrirlestra
I fyrri daginn þar sem umfjöllunarefnið
tengdist beint námsefni þeirra . Fyrirlestrar
voru fluttir báða dagana og voru þeir mjög
fróðlegir. Seinni daginn var þátttakendum
skipt upp í vinnuhópa sem unnu með efni
fyrirlestranna. Hópstjórar skiluðu niðurstöð-
um vinnuhópanna í lok starfsdaganna. Skip-
uð var ályktunarnefnd sem sat að störfum
báða dagana. Alyktanir starfsdaga voru sam-
þykktar af fundarmönnum og birtust síðar í
fjölmiðlum.
fagráði sitja Aslaug Þórðardóttir, Guðríður
Björnsdóttir, Hrönn Hilmarsdóttir, Þóra Elín Arnarsdótt-
ir, ásamt undirritaðri.
Vil ég nota tækifærið og þakka öllum, sem komu að
undirbúningi starfsdagana á einn eða á annan hátt.
Fyrir hönd fagráðs ÞI
Unnnr Fríða Halldórsdóttir, formaður
I
rntu þértifið
vió bjóðum uppá einfaídar lausnir og gæði
Fjölbreytt úrval hjálpartækja
Verslunin er opin
kl. 8:30-17:ÖO alla virka daga
Nánari upplýsingar og ráðgjöf
í síma 569 3100
Stórhöfða25 | HOReykjavík | Simi 5693100 \ Fax 569 3101 \ eirberg@eirberg.is \ www.eirberg.is
W Brber9
ÞJÓNUSTUFYRIR
ÞJÓNUSTUFYRIRTÆKI Á H EIL B RIG ÐIS S VIÐI